„Það er ekkert grín að mæta í Kaplakrika“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. maí 2026 15:16 Jón Bjarni Ólafsson í kröppum dansi á línunni. vísir/anton Línumaðurinn Jón Bjarni Ólafsson segir FH-inga staðráðna í að knýja fram oddaleik í einvíginu gegn Valsmönnum um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta. Hann hefur trú á að heimavöllurinn vegi þungt í fjórða leik FH og Vals í kvöld.
FH er með bakið upp við vegg fyrir leik kvöldsins. Valur er 2-1 yfir í einvíginu og með sigri í Kaplakrika í kvöld verður liðið Íslandsmeistari í 25. sinn. En Jón Bjarni og félagar í FH hafa engan áhuga á að láta það gerast. „Leikurinn leggst bara mjög vel í mig. Við ætlum að mæta hundrað prósent, gefa alvöru slag og enda á sigri,“ sagði Jón Bjarni í samtali við íþróttadeild í dag. Allir þrír leikirnir í úrslitaeinvíginu hafa unnist á heimavelli og Jón Bjarni vonast til að engin breyting verði þar á í kvöld. „Það verður svo sannarlega raunin í kvöld. Það er ekkert grín að mæta í Kaplakrika, hvað þá þegar það er að duga eða drepast,“ sagði Jón Bjarni. „Þetta eru búnir að vera jafnir leikir. Augljóslega geta bæði lið unnið hvort annað. Sérstaklega leikur þrjú, hann hefði getað sveiflast í báðar áttir. Við hefðum átt að gera betur þar en við bætum upp fyrir það í dag.“ Frábært tímabil Jón Bjarni kveðst ánægður með tímabilið hjá FH en vonast að sjálfsögðu til að það endi með öðrum Íslandsmeistaratitlinum á síðustu þremur árum. Jón Bjarni varð Íslandsmeistari með FH 2024.vísir/diego „Mér finnst þetta í raun vera frábært tímabil. Við erum einu stigi frá því að vera deildarmeistarar. Svo gerum við smá mistök á móti Haukum í bikarnum og dettum út þar í undanúrslitum. Og núna erum við komnir í leik fjögur í úrslitaeinvíginu við Val,“ sagði Jón Bjarni. Stoltur af ungu strákunum og vonar að þeir hlusti „Þetta er góður árangur, sérstaklega með ungu strákana sem eru búnir að koma svo rosalega vel inn. Maður er mjög stoltur af þeim og þeir eru ótrúlega góðir. Gassi [Garðar Ingi Sindrason] er að fara út til Gummersbach og Ómar [Darri Sigurgeirsson] er búinn að stíga heldur betur upp. Svo allir hinir strákarnir. Við erum allir duglegir að æfa og allir að róa í sömu átt.“ Jón Bjarni hefur skorað níu mörk í úrslitaeinvíginu gegn Val.vísir/anton Þótt Jón Bjarni sé ekki aldraður er hann meðal elstu manna í leikmannahópi FH. Hann reynir eins og hann getur að hjálpa ungu strákunum í liðinu. „Já, maður reynir að miðla einhverri reynslu en hvort þeir séu tilbúnir til að hlusta á mann, það verður að koma í ljós,“ sagði Jón Bjarni. Leikur FH og Vals hefst klukkan 19:30 í kvöld og verður í beinni textalýsingu á Vísi.
Olís-deild karla FH Valur Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Sjá meira