Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. maí 2026 13:52 Þorvaldur Davíð og Lárus Blöndal berjast fyrir sæti í borgarstjórn samkvæmt nýjustu kosningaspá Vísi. Sjálfstæðisflokkurinn eykur forskot sitt á Samfylkinguna samkvæmt nýjustu kosningaspá Vísis þar sem tekið er tillit til könnunar Gallup seinni hluta apríl. Sósíalistar styrkja stöðu sína en staðan veikist hjá Flokki fólksins.
Kosningaspá Vísis sem Baldur Héðinsson stærðfræðingur gerir hefur verið uppfærð miðað við könnun Gallup sem gerð var 17. til 29. apríl. Sjálfstæðisflokkurinn styrkir stöðu sína sem stærsti flokkur borgarinnar og eru nú vel yfir helmingslíkur á að flokkurinn nái inn sjö fulltrúum. Samfylkingin er með rétt rúmar helmingslíkur á að ná inn sex borgarfulltrúum. Líkurnar á að Bjarni Fritzson, áttundi maður Sjálfstæðisflokksins, komist inn mælast 38 prósent en helmingi minni líkur eru á að Regína Ásvaldsdóttir, í sjöunda sæti hjá Samfylkingunni, komist inn. Vinstrið mælist áfram þriðji stærsti flokkurinn í borginni og gæti fengið þrjá borgarfulltrúa með auknum líkum Stefáns Pálssonar á að komast inn. Viðreisn og Miðflokkur mælast svo til á pari og eiga í harðri baráttu um að ná inn þriðja borgarfulltrúa sínum. Þorvaldur Davíð Kristjánsson í þriðja sæti hjá Viðreisn mælist með 46 prósent líkur á sæti í borgarstjórn en líkurnar eru 43 prósent í tilfelli Lárusar Blöndal í þriðja sæti Miðflokksins. Silja Sóley Birgisdóttir oddviti Sósíalistaflokksins styrkir stöðu sína en mikið þarf að gerast til að flokkurinn nái inn öðrum fulltrúa. Kristinn Jón Ólafsson oddviti Pírata er enn nokkuð öruggur inn en Alexandra Briem borgarfulltrúi er mjög ólíkleg með sæti sem stendur. Borgarstjórn Reykjavíkur kosningaspá Staða Einars Þorsteinssonar oddvita Framsóknar veikist lítillega milli kosningaspáa og eru rétt rúmlega helmingslíkur á að hann nái sæti í borginni. Magnea Gná Jóhannsdóttir núverandi borgarfulltrúi situr í öðru sæti og virðist sem það sé fjarlægur draumur að hún nái inn. Guðmundur Ingi Þóroddsson oddviti Flokks fólksins mælist ekki inni í borgarstjórn og staða hans veikist. Líkur á sæti mælast aðeins 30 prósent. Sigfús Aðalsteinsson oddviti Okkar borgar mælist enn ólíklegri en áður til að komast í borgarstjórn. Líkurnar eru aðeins 14 prósent. Mögulegir meirihlutar Eini mögulegi tveggja flokka meirihlutinn í borginni sem stendur er samvinna Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar. Telja má harla ólíklegt að slíkar breytingar verði á fylgi næstu tólf dagana að aðrir tveggja flokka meirihlutar verði mögulegir. Líkurnar á að Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Miðflokkurinn myndi tólf manna meirihluta til hægri mælast 64 prósent sem stendur. Líkurnar á að Samfylkingin geti myndað meirihluta til vinstri með Vinstrinu og Viðreisn eru 35 prósent. Líklegt er að Samfylkingin þyrfti að bjóða Pírötum, Framsókn eða Sósíalistum upp í dans til að ná tólf manna meirihluta með Vinstrinu og Viðreisn.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kosningaspá Vísis Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira