Slot við Hjörvar: „Ég held að öllum hafi liðið þannig“ Sindri Sverrisson skrifar 4. maí 2026 10:00 Arne Slot ræddi við Hjörvar Hafliðason fyrir Sýn Sport á Old Trafford, eftir tapið gegn Manchester United. Sýn Sport Liverpool-stjórinn Arne Slot ræddi við Hjörvar Hafliðason á Old Trafford í gær, eftir 3-2 tapið gegn Manchester United, og sagði alla hafa haft trú á því að það yrði Liverpool sem næði inn sigurmarkinu. Sama vandamál og í allan vetur hefði hins vegar gert vart við sig.
Liverpool lenti 2-0 undir í fyrri hálfleik en jafnaði metin í þeim seinni áður en Kobbie Mainoo skoraði sigurmark United á 77. mínútu. Hjörvar spurði Slot út í muninn á Liverpool í upphafi fyrri og seinni hálfleiks. „Byrjuðum við hægt? Við byrjuðum mun hraðar í seinni hálfleik, það er á hreinu. En það hjálpar aldrei til að fá á sig mark úr föstu leikatriði svona snemma leiks, sérstaklega á útivelli þar sem stuðningsmennirnir komast þá í gírinn. Eftir að við fengum á okkur fyrsta markið þá héldum við boltanum og höfðum stjórn, án stórra færa, en svo misstum við boltann með einföldum hætti á miðjunni og þar liggur einn þeirra helsti styrkleiki. Þeir hafa marga [styrkleika] en einn þeirra er skyndisóknirnar. Út fyrri hálfleikinn vorum við svo með boltann án þess þó í raun að skapa færi. Ég sagði þeim að við þyrftum alls ekki að tapa þessum leik ef við næðum að koma inn marki – gera hlutina af aðeins meiri ákveðni og krafti. Það sýndum við í seinni hálfleiknum,“ sagði Slot en viðtalið við hann má sjá hér að ofan. Mörkin úr leiknum má sjá hér að neðan. Hjörvar sagði að svo virtist sem að oft kæmi sigurmark í lok leikja hjá Liverpool, annað hvort hjá Liverpool eða andstæðingnum, því það væri allt lagt í sölurnar. Slot hlyti að hafa liðið eins og að Liverpool myndi ná að landa sigrinum: „Ég held að öllum hafi liðið þannig. Eftir að við jöfnuðum í 2-2 þá héldum við áfram að þrýsta og þrýsta á þá. Líkt og mestallan leikinn þá héldum við líka boltanum betur, og komumst alltaf nær og nær því að skora, en eins og svo oft á þessari leiktíð þá slökktum við á okkur á einu augnabliki. Og eins og alltaf á þessari leiktíð þá leiddi það strax til þess að við fengum á okkur mark. Við vorum þá 3-2 undir og reyndum áfram eftir þetta en náðum ekki að jafna,“ sagði Slot en nánar er rætt við hann í viðtalinu hér að ofan.
Enski boltinn Liverpool FC Messan Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira