Mjög brugðið við fréttirnar af Ferguson Sindri Sverrisson skrifar 4. maí 2026 08:03 Sir Alex Ferguson og Michael Carrick fögnuðu fjölda titla saman. Getty/Richard Sellers Michael Carrick, þjálfara Manchester United, var líkt og fleirum mjög brugðið þegar það fréttist að Sir Alex Ferguson, lærifaðir hans, hefði verið fluttur af Old Trafford á sjúkrahús fyrir 3-2 sigur United gegn Liverpool í gær.
Hinn 84 ára gamli Ferguson hlaut aðhlynningu sjúkraliða á Old Trafford áður en hann var fluttur með sjúkrabíl. Carrick fékk þessar fréttir skömmu áður en flautað var til leiks. Samkvæmt breska ríkismiðlinum, BBC, var þó ekki um bráðatilvik að ræða heldur um varúðarráðstafanir, og standa vonir til þess að Ferguson fái fljótlega að fara heim til sín. Ferguson varð því ekki vitni að því þegar United tryggði sér formlega sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð, með því að vinna erkifjendurna með sigurmarki Kobbie Mainoo. Carrick sagðist þó vonast til að þessi niðurstaða myndi færa Ferguson góða hvatningu. United veitti engar fréttir af Ferguson í gær og hvað hefði orðið til þess að hann var fluttur á sjúkrahús. Hann fékk blóðtappa í heila árið 2018 og varð þá mjög veikur en hefur náð sér vel af því. Úrslitin hjálpi vonandi til „Ég hef ekki fengið neinar fréttir svo ég veit ekki hver staðan er akkúrat núna,“ sagði Carrick við fjölmiðla eftir leik í gær. „Ég heyrði af þessu fyrir leikinn. Það eina sem ég get sagt er að þessar fréttir höfðu veruleg áhrif á mig,“ sagði Carrick. „Síðan vonum við bara að það sé í lagi með hann. Við vonum að hann sé í góðu ástandi, óskum honum alls hins besta og hugsum svo sannarlega til hans. Vonandi hefur það góð áhrif á hann að heyra hver úrslitin urðu,“ sagði Carrick. Undir stjórn Carricks hefur United nú unnið Liverpool, Manchester City, Arsenal, Aston Villa og Chelsea, og alls tíu af fjórtán leikjum, og fært góð rök fyrir því að hann feti í fótspor Fergusons og verði stjóri United til frambúðar.
Enski boltinn Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira