Formúla 1

For­múlunni flýtt vegna storms

Valur Páll Eiríksson skrifar
Max Verstappen hefur keppni annar í dag, á eftir Kimi Antonelli sem er á ráspól.
Max Verstappen hefur keppni annar í dag, á eftir Kimi Antonelli sem er á ráspól. Mark Sutton - Formula 1/Formula 1 via Getty Images

Formúlu 1-keppni dagsins hefur verið flýtt um þrjár klukkustundir. Keppni dagsins hefst klukkan 17:00 og bein útsending hefst klukkan 16:30 á Sýn Sport Viaplay.

Veðurspár gera ráð fyrir þrumuveðri á Flórída-skaga í kvöld og vegna þess hefur keppninni verið flýtt. Gera má ráð fyrir fyrstu keppni tímabilsins við votar aðstæður.

Ekki hefur reynt á nýja Formúlubíla í rigningu en sjaldan ef nokkurn tíma hafa eins miklar breytingar verið gerðar á regluverki um smíð á bílum í Formúlu 1 í sögunni.

Ný áskorun bíður því ökuþóranna í regninu í Miami seinni partinn. Keppnin átti að hefjast klukkan 20:00 en er þess í stað klukkan 17:00.

Kimi Antonelli á Mercedes hefur keppni dagsins á ráspól og Max Verstappen á Red Bull er annar í rásröðinni. Svo koma Charles Leclerc á Ferrari, Lando Norris á McLaren og George Russell á Mercedes er fimmti.

Bein útsending hefst klukkan 16:30 á Sýn Sport Viaplay.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×