Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Rakel Sveinsdóttir skrifar 2. maí 2026 10:03 Morgunvenjurnar heima hjá Heiðu Halldórsdóttur, forstjóra Orkusölunnar, bera keim af því að dóttirin sé eins og föst á amerískum tíma á meðan sonurinn sér sjálfur um að koma sér fram úr en væri til í 5 stjörnu morgunmat alla morgna. Vísir/Vilhelm Þegar Heiða Halldórsdóttir, forstjóri Orkusölunnar, var unglingur fannst henni leikarinn Johnny Depp svo sætur að hún átti stundum erfitt með að anda. Ólíkir karakterar á heimilinu setja skemmtilegan svip á morgunvenjur heimilisins.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fólk fer að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Ég er alltaf vöknuð um 6:30 og hef ekki þurft að stilla vekjaraklukku í mörg ár. Það hræðir mig aðeins, mér finnst þetta vera smá merki um að ég sé að eldast óþarflega hratt. Ég stekk samt alls ekki fram úr rúminu á þessum tíma nema reyndar á mánudögum og miðvikudögum. Þá mæti ég í ræktina með systur minni en hún á stóran þátt í því að halda líkamlegri og andlegri heilsu minni í jafnvægi með sínum heræfingum.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? Ég er því miður alltof gjörn á að fara í símann en annars byrja ég alltaf á því að fara í sturtu og svo beint í kaffivélina. Kaffivélin hefur verið kosin heimilismeðlimur ársins þrjú ár í röð og gætum við ekki verið án hennar. Síðan tekur við að vekja dóttur mína, 11 ára, en ég held að hún sé föst á amerískum tíma. Hún hefur sagt frá því að hún hafi verið lítið barn: „Vá mamma, núna er ég loksins vöknuð!“ Og þá er klukkan að slá 22:00 og hún á að vera löngu sofnuð. Það er því ákveðin athöfn sem á sér stað alla morgna að ná henni fram úr. Strákurinn minn, sem er 16 ára, hefur hins vegar nánast séð um sig sjálfur í mörg ár, ég hef mjög sjaldan þurft að vekja hann eða ýta honum út. Hann vaknar sjálfur og græjar sig en vill reyndar fá 5 stjörnu morgunmat alla daga, sem er önnur saga.“ Hvaða sjónvarpssería eða kvikmynd var í algjöru uppáhaldi hjá þér sem unglingur? Ég horfði á Cry-Baby á hverjum degi eftir skóla, líklega á hámarki gelgjunnar, í 7. eða 8. bekk, en mér fannst Johnny Depp svo sætur að ég átti erfitt með að anda. Ég kunni myndina algjörlega utan að en ég horfði á hana um daginn og hún eldist því miður ekkert rosalega vel, en ég er samt Cry-Baby fan nr1 og kann að sjálfsögðu myndina ennþá utan að.“ Heiðu finnst gott að renna aðeins yfir tölvupósta og dagatalið áður en hún leggur af stað til vinnu á morgnana. Heiða notar Asana með vinnufélögum og er sjálf með sum verkefnin sín í Notes. Sem hún þó segir geta orðið svolítið kaotískt utanumhald.Vísir/Vilhelm Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana? „Ég tók nýverið tímabundið við forstjórastöðu Orkusölunnar en ég hef starfað hjá fyrirtækinu í rúm 7 ár. Ég þekki því fyrirtækið vel, menninguna okkar og er ótrúlega þakklát stjórn Orkusölunnar fyrir að treysta mér fyrir þessu stóra hlutverki. Milli þess sem ég les raforkulögin og reyni að skipta þeim út fyrir Cry-Baby lögum þá snýst dagurinn að mestu um að halda skýrum fókus á það sem skiptir máli, að styðja við teymið mitt, tryggja að við séum að taka góðar og skýrar ákvarðanir og að við höldum áfram að þróa fyrirtækið áfram í átt að þeirri framtíðarsýn sem við trúum á og viljum virkilega standa fyrir. Við erum á mjög spennandi stað sem fyrirtæki, fögnuðum 20 ára afmæli um daginn og erum með sterkan grunn, en það eru líka fullt af tækifærum fram undan. Samkeppni á raforkumarkaði hefur aldrei verið meiri, en núna er fókusinn hjá mér að styrkja kjarnann okkar enn frekar, en líka að horfa fram á við. Hvernig við getum einfaldað raforkumarkaðinn fyrir viðskiptavini, aukið gagnsæi og skapað raunverulegt virði í gegnum enn betri upplifun. Markmiðið er að halda áfram að vaxa á heilbrigðan hátt, byggja upp enn sterkari liðsheild og tryggja að Orkusalan sé áfram leiðandi og auðvitað vera í stanslausu stuði á öllum vígstöðum.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? Mér finnst mjög gott að byrja á að opna tölvuna heima áður en ég legg af stað upp í vinnu og renna aðeins yfir tölvupóstinn og dagatalið. Við hjá Orkusölunni notum Asana til að halda utan um stór verkefni og hef ég tekið markaðsdeildina til fyrirmyndar í þeim efnum en þau nýta það kerfi mjög vel. Ég held því utan um mín verkefni í Asana en nota líka Notes mikið, sem getur stundum orðið svolítið kaotískt.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? Ef það er ekki happy hour með skemmtilegasta samstarfsfólkinu beint eftir vinnu þá er ég oftast farin að sofa kl 22:00, sem er einmitt nákvæmlega sami tími og þegar dóttir mín telur að lífið sé að byrja. Hún er því mjög gjörn á að ná okkur í spilakvöld eða keyra einhverja stemningu í gang eftir kvöldmat. Við spilum bæði Catan og Partners reglulega sem endar stundum í öskrum sökum sjúklegs keppnisskaps hjá sumum fjölskyldumeðlimum... en ég held í vonina að spilakvöldin verði ein af kjarnaminningum hjá börnunum en ekki einhvers konar traumaminning.“
Kaffispjallið Tengdar fréttir Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Melkorka Sigríður Magnúsdóttir, listrænn stjórnandi Iceland Innovation Week og framkvæmdastjóri Milk & Kleina, mælir með hugsanalestri því hann sparar bæði tíma og óþarfa fundi. Melkorka segist vera dottin í smá nörd á morgnana: Dagarnir byrji á skoðun tölfræði um svefn næturinnar. 25. apríl 2026 10:00 Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Baldur Rafn Gylfason, hárgreiðslumeistari og eigandi bpro heildsölu, er vaknaður eldsnemma á morgnana og rýkur þá beint af stað á æfingu. Viðurkennir þó að fara of seint að sofa á kvöldin og væri alveg til í að festa það betur í rútínunni að ná að anda djúpt, hugleiða og rækta þakklætið á hverjum degi. 18. apríl 2026 10:01 Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Lilja Kristín Birgisdóttir, markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum, viðurkennir að fara alltof seint að sofa. Hundurinn sér síðan um að koma henni fram úr um sex leytið. Synirnir eru ekkert alltof hrifnir af því að foreldrarnir byrji daginn með dansi. 11. apríl 2026 10:00 Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Fannar Örn Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri Terra Eininga og Öryggisgirðinga, segir það alltof gott að snúsa á morgnana. Reglulega reynir hann þó að fara í átak, vakna klukkan 06.30 og skella sér í ræktina áður en hann fer að vinna. Síðan hefst snúsið á ný. 4. apríl 2026 10:02 „Ég var geggjuð skvísa, en það er ekki mér að þakka“ Erla Ásgeirsdóttir, stjórnarkona og tilvonandi frumkvöðull, segir nátthrafnana á heimilinu oft halda vöku fyrir þeim hjónum. En þarf þó að viðurkenna á sig að vaka stundum of lengi við að horfa á sjónvarpið uppi í rúmi eða hlusta á Storytel. 28. mars 2026 10:02 Mest lesið Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Viðskipti erlent Fleiri fréttir Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Húsið sem næstum gleymdist: „Eins og kýlt í hjartað á mér“ Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Sjá meira
Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Melkorka Sigríður Magnúsdóttir, listrænn stjórnandi Iceland Innovation Week og framkvæmdastjóri Milk & Kleina, mælir með hugsanalestri því hann sparar bæði tíma og óþarfa fundi. Melkorka segist vera dottin í smá nörd á morgnana: Dagarnir byrji á skoðun tölfræði um svefn næturinnar. 25. apríl 2026 10:00
Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Baldur Rafn Gylfason, hárgreiðslumeistari og eigandi bpro heildsölu, er vaknaður eldsnemma á morgnana og rýkur þá beint af stað á æfingu. Viðurkennir þó að fara of seint að sofa á kvöldin og væri alveg til í að festa það betur í rútínunni að ná að anda djúpt, hugleiða og rækta þakklætið á hverjum degi. 18. apríl 2026 10:01
Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Lilja Kristín Birgisdóttir, markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum, viðurkennir að fara alltof seint að sofa. Hundurinn sér síðan um að koma henni fram úr um sex leytið. Synirnir eru ekkert alltof hrifnir af því að foreldrarnir byrji daginn með dansi. 11. apríl 2026 10:00
Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Fannar Örn Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri Terra Eininga og Öryggisgirðinga, segir það alltof gott að snúsa á morgnana. Reglulega reynir hann þó að fara í átak, vakna klukkan 06.30 og skella sér í ræktina áður en hann fer að vinna. Síðan hefst snúsið á ný. 4. apríl 2026 10:02
„Ég var geggjuð skvísa, en það er ekki mér að þakka“ Erla Ásgeirsdóttir, stjórnarkona og tilvonandi frumkvöðull, segir nátthrafnana á heimilinu oft halda vöku fyrir þeim hjónum. En þarf þó að viðurkenna á sig að vaka stundum of lengi við að horfa á sjónvarpið uppi í rúmi eða hlusta á Storytel. 28. mars 2026 10:02