Kærastan 31 ári yngri: „Ég fékk mikil viðbrögð í upphafi“ Sindri Sverrisson skrifar 1. maí 2026 09:00 Ulrik Wilbek hlaut fjölda verðlauna sem landsliðsþjálfari Dana. Getty Ulrik Wilbek, fyrrverandi landsliðsþjálfari Danmerkur og maðurinn sem sagður var hafa reynt að bola Guðmundi Guðmundssyni úr því starfi, hefur sjaldnast viljað veita innsýn inn í einkalíf sitt en gerði undantekningu á því í vikunni.
Wilbek er orðinn 68 ára gamall en hann stýrði dönsku handboltalandsliðunum um árabil. Fyrst kvennalandsliðinu frá 1992-97 og svo karlalandsliðinu frá 2005-14. Í viðtali við Ekstra Bladet talar Wilbek í fyrsta sinn opinberlega um samband sitt við Louise Kamstrup, sem er 31 ári yngri en þessi fyrrverandi borgarstjóri í Viborg. Kamstrup var einmitt starfsmaður í ráðhúsinu. Áður var Wilbek lengi í sambandi með Susanne Munk og voru þau mjög þekkt í Danmörku enda miklar handboltastjörnur bæði tvö en sambandinu lauk sumarið 2024. Hálfu ári síðar kom fram að Wilbeck og Kamstrup hefðu tekið saman og vakti aldursmunurinn mikla athygli. Höfum það gott og það er mikilvægast „Ég fékk mikil viðbrögð í upphafi vegna aldursmunarins en ég vil ekki fara út í það hvenær við kynntumst,“ sagði Wilbek við Ekstra Bladet. Hann útskýrði svo hvers vegna hann hefur ekki viljað tjá sig opinberlega um sambandið. „Það myndi allt saman bara gera aðrar manneskjur leiðar. Það vil ég ekki. Ég get bara sagt að ég hef það gott núna og er í sambandi sem lætur suma hugsa með sér „hættu nú, þetta er mikill aldursmunur“. Já, það er rétt en við höfum það gott. Það er nú mikilvægast,“ sagði Wilbek. Ulrik Wilbek ræðir við Guðjón Val Sigurðsson og Sigfús Sigurðsson, á Ólympíuleikunum í Peking 2008 þar sem Ísland endaði á að spila til úrslita við Frakka og vinna silfurverðlaun.VÍSIR/VILHELM Gafst snemma upp á að tjá sig um einkalífið Þá sagðist hann snemma hafa tileinkað sér það að ræða ekki um sitt einkalíf opinberlega, eftir að blaðamenn Séð og heyrt í Danmörku heimsóttu hann og Munk á sínum tíma, til að fjalla um parið og heimili þeirra. Ekkert hefði verið spurt út í íþróttina sem þau unnu við nema hvað Munk fékk spurningu um hve mörg mörk hún hefði skorað. Þau hefðu nú ekki verið mörg þar sem hún var jú markvörður. Wilbek vann heims- og ólympíumeistaratitil með kvennalandsliði Danmerkur á tíunda áratug síðustu aldar, auk tveggja Evrópumeistaratitla, og tvo Evrópumeistaratitla með karlaliðinu auk fleiri verðlauna, áður en hann hætti þjálfun og var leystur af hólmi af Guðmundi. Hann var svo sakaður um að grafa undan Guðmundi á Ólympíuleikunum 2016, sem íþróttastjóri danska handknattleikssambandsins, en undir stjórn Guðmundar urðu Danir svo Ólympíumeistarar og lét Wilbek í kjölfarið af störfum.
Handbolti Danski handboltinn Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Sjá meira