Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 3. maí 2026 19:01 Fólk við Gróttu Doktorsnemi við Háskóla Íslands vinnur nú að því að búa til vefjastoðefni úr brúnþara. Hún segir ákveðna þarabyltingu handan við hornið en með uppfinningunni sé hægt að rækta grænt kjöt, meðhöndla krónísk sár og byggja bein.
Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands voru veitt í vikunni. Sigurvegari samkeppninnar í heild var doktorsverkefni Svövu Kristinsdóttur, doktorsnema í lífverkfræði sem gengur út á að þróa vefjastoðefni úr brúnþara í stað dýravefja sem nýtist meðal annars til að meðhöndla krónísk sár, bruna eða aðrar vefjaskemmdir. „Það byggir á því að taka brúnþara og búa til úr honum það sem kallað er vefjastoðefni, sem er það sem er notað innan vefjaverkfræði til að í raun og veru búa til líkamsvefi.“ Í umsögn dómnefndarinnar segir að verkefnið hafi mikinn samfélagslegan ávinning og möguleika til atvinnu- og verðmætasköpunar til framtíðar auk þess sem það mæti vaxandi kröfum um sjálfbærni í heilbrigðisgeiranum. Svava segir mikla nýtingarmöguleika fólgna í verkefninu. „Við sjáum fyrir okkur að geta notað þessa uppfinningu sem við erum búin að vinna að í fimm ár í einhvers konar vefjarannsóknir eða vefjauppbyggingu og þá erum við að tala um alls konar möguleika. Allt frá því að rækta grænt kjöt eða byggja bein, allt þar á milli.“ Þarabylting Heilmiklir möguleikar séu fyrir hendi þegar kemur að þara, bæði innan læknisfræðinnar og matvælageirans. „Ég á nú ekki þessa setningu, ég held að hún komi frá forsetanum okkar að það er mögulega framundan einhvers konar þarabylting. Þannig við erum bara spennt og ætlum að fylgja með í þessari þarabyltingu sem er handan við hornið.“
Vísindi Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fleiri fréttir Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Sjá meira