Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Árni Sæberg skrifar 30. apríl 2026 12:18 Hæstiréttur kvað upp dóm í málinu í gær. Vísir/Vilhelm Hæstiréttur hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekki sé heimilt að arfleiða bréferfingja að innistæðu séreignarsparnaðar ef lögerfingjum er til að dreifa. Þannig mátti karlmaður ekki arfleiða sambýliskonu sína að einum þriðja innistæðu heldur rann öll innistæðan til barna hans.
Hæstiréttur kvað upp dóm þess efnis í gær. Í dóminum segir að konan hafi höfðað málið og krafist þess að viðurkennt yrði að hún ætti, sem bréferfingi, rétt til þriðjungs innstæðu séreignarlífeyrissparnaðar sem sambýlismaður hennar átti hjá Almenna lífeyrissjóðnum við andlát hans árið 2022 en til vara lægri hlutdeildar. Hún hafi byggt kröfu sína á því að hún væri erfingi mannsins í skilningi laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Hæstiréttur hafi komist að þeirri niðurstöðu að það væri aðeins við þær aðstæður að hvorki maka né börnum rétthafa væri til að dreifa að innstæða í séreignarlífeyrissparnaði rynni til dánarbús þannig að hún kæmi til skipta með öðrum eignum búsins eftir nánari ákvæðum erfðalaga, þar á meðal þeim sem fjölluðu um bréferfð. Samkvæmt því hefði konan sem bréferfingi mannsins því aðeins átt rétt til hlutdeildar í séreignarlífeyrissparnaði mannsins að hann hefði ekki látið eftir sig maka eða börn. Ágreiningslaust hafi verið í málinu að svo háttaði ekki til við andlát hans. Lífeyrissjóðurinn hafi því verið sýknaður af öllum kröfum konunnar og hún dæmd til að greiða sjóðnum eina milljón króna í málskostnað fyrir Hæstarétti.
Dómsmál Lífeyrissjóðir Fjölskyldumál Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Sjö ára dómur Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira