Rekstrarafgangur á kostnað íbúa - er það árangur? Matthías Bjarnason skrifar 29. apríl 2026 12:03 Það er áhugavert að fylgjast með fulltrúum meirihlutans hampa sér vegna afkomu Sveitarfélagsins Árborgar. Reksturinn hefur batnað og samkvæmt meirihlutanum liggur lykillinn þar í ábyrgri fjármálastjórn, hagræðingu og auknum tekjum. Líkt og fyrir fjórum árum er því lofað að þessi ábyrga fjármálastjórn muni skila sér til íbúa í formi lægri skatta. Raunverulega áhrif á íbúa Hin „ábyrga fjármálastjórn” hefur fyrst og fremst falist í hækkun skatta, fasteignaskattar í Árborg voru þeir hæstu á landinu árið 2025. Prósentulækkun árið 2026 var dropi í hafið miðað við hækkanir fyrri ára og hækkun á fasteignamati. Rekstrarafkoma sveitarfélagsins árið 2025 var tæpar 1.500 milljónir á meðan tekjur fasteignaskatta voru í kringum 2.300 milljónir. Áhrif fasteignaskatta á heimili og fyrirtæki er verulega íþyngjandi miðað við fjárhagslegan ávinning sveitarfélagsins. Fjölgun íbúða og þar með fjölgun útsvarsgreiðenda, hefur töluvert meiri og jákvæðari áhrif á reksturinn heldur en hækkun fasteignaskatta. Íbúafjölgun hefur haldið áfram og er helsta orsök þess að sveitarfélagið er að komast yfir skaflinn fjárhagslega. Það má hins vegar ekki gleyma að þessi fjölgun hefði verið ómöguleg án uppbyggingu innviða sem átti sér stað kjörtímabilið 2018-2022. Við viljum áfram styrkja stoðir sveitarfélagsins með fjölgun íbúa, en uppbygging innviða þarf að fylgja. Formaður bæjarráðs skellir skömminni á fulltrúa Framsóknar og annara flokka, en hann og aðrir Sjálfstæðismenn í Árborg hafa aldrei aldrei viljað horfast almennilega í augu við þann vanda sem þeir komu sveitarfélaginu í. Þeir hafa aldrei viðurkennt mikilvægi innviðauppbyggingar né þá skuld sem hlýst af vanrækslu hennar og nú er haldið áfram á sömu braut. Þetta er nákvæmlega aðferðafræðin sem Sjálfstæðismenn beittu árin 2010-2018, þegar innviðaskuldin náði hámarki. Framsókn hefur ávallt viðurkennt vandann Allir bæjarfulltrúar skrifuðu undir skjal árið 2023 þar sem staðfest var að álag yrði lagt á íbúa til eins árs. Fyrst og fremst til að sýna fjárfestum að sveitarfélagið væri lánshæft. Sú aðgerð bar árangur og sveitarfélagið fékk nauðsynlegt fjármagn. Við í Framsókn gerðum ráð fyrir að álagið yrði afnumið um leið og aðstæður leyfðu. Reksturinn batnaði, með um 3.000 milljóna kr. afgangi árið 2024 og 1.500 milljóna kr. afgangi árið 2025. Þrátt fyrir þennan viðsnúning fengu íbúar samt reikning fyrir álaginu sumarið 2025. „Íþyngjandi neyðarúrræði og þungbær ákvörðun” segja fulltrúar meirihlutans. Þrátt fyrir að tækifæri hefðu verið til staðar til að semja við ráðuneytið um endurgreiðslu og hlífa íbúum Árborgar, var meirihlutanum nokkuð léttvæg ákvörðun að endurskoða ekki þetta neyðarúrræði. Vilji Sjálfstæðisflokksins stóð ekki til þess. Loforðið um að bættur rekstur skili sér til íbúa virðist því ekki vera í forgangi. Árangur meirihlutans virðist eingöngu vera mældur í niðurstöðu ársreikninga. Hvernig á að mæla raunverulegan árangur? Ég skilgreini árangur í sveitarstjórnarmálum á víðari grunni en í ársreikningum. Fyrir mér er árangur að skila af sér sveitarfélagi með traustan rekstur sem ræður við verkefni framtíðarinnar. En árangur felst einnig í bættri þjónustu sveitarfélagsins, að börn komist inn á leikskóla, að aðstaða anni eftirspurn þegar kemur að íþróttum, frístundum, tómstundum og skólum. Að uppbygging innviða sé hugsuð til langs tíma í takt við íbúafjölgun, ekki á eftir. Að fólkið sem lagði grunninn að því samfélagi sem við búum í dag, fái þá þjónustu sem það á skilið. Við í Árborg þurfum að horfa til framtíðar og komast út úr þeim viðbragðsdrifna fasa sem hefur einkennt reksturinn undanfarin ár. Ég vona að ég geti, eftir fjögur, átta eða tólf ár, bent á raunverulegan árangur. Árangur sem mælist ekki eingöngu í ársreikningum, heldur í lífsgæðum íbúa. Höfundur er oddviti B-lista Framsóknar í Árborg. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Árborg Mest lesið „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar