Frelsi kvenna er ekki vandamálið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar 27. apríl 2026 23:03 Ég elskaði að ganga með börnin mín þrjú. Elskaði að hugsa um þau sem ungabörn og elskaði þann dýrmæta fjölskyldutíma sem fylgir því að eignast börn. Að sama skapi þótti mér gott, og í raun nauðsynlegt, að komast aftur út á vinnumarkaðinn, taka fullan þátt í samfélaginu að nýju samhliða því sem ég sinnti fjölskyldunni. Í því felst ekki mótsögn. Það snýst um valfrelsi. Það var einmitt það sem ég barðist fyrir innan míns gamla flokks á tíunda áratug síðustu aldar, ásamt hópi flokkssystra sem þá þótti ansi róttækur. Við kölluðum okkur Sjálfstæðar konur, og beittum okkur fyrir því að réttur kynjanna til fæðingarorlofs væri jafnaður. Fæðingarorlof hafði þá að mestu verið bundið við mæður, en við lögðum áherslu á sjálfstæðan rétt feðra. Við höfðum þá trú að staða kynjanna á vinnumarkaði yrði ekki jöfnuð nema hluti fæðingarorlofs yrði beinlínis bundinn feðrum. Og til að koma á jafnrétti í reynd væri æskilegt að bæði feður og mæður kæmu að umönnun ungra barna. Þannig þyrftu konur ekki að velja á milli, heldur hefðu þær raunverulegt frelsi til að ákveða næstu skref eftir barneignir. Hvernig þær vildu haga tíma með börnunum sínum og hvenær þær vildu mennta sig, vinna eða gera hvort tveggja. Án þess líka að verða refsað fyrir það launalega. Lífeyrislega. Réttindalega. Og missa tækifæri til efnahagslegs sjálfstæðis og frelsis. En í okkar huga snerist breytingin ekki síður um það að karlar fengju að kynnast því að vera heima hjá börnum. Og slík tækifæri fengju þeir ekki nema ef hluti orlofsins yrði til að byrja með bundinn þeim. Það yrði að vera fyrirkomulagið á meðan atvinnulífið viðurkenndi að það væri eðlilegt og sjálfsagt að ung börn fengju að kynnast feðrum sínum og mynda við þá heilbrigð tengsl. Árangurinn er einstakur og hefur vakið athygli á heimsvísu. Sjálfstæðisflokkurinn var í fararbroddi þessara breytinga og þess vegna er það sláandi að fylgjast með orðræðu innan úr þingflokki sama stjórnmálaflokks þessa dagana. Þegar þingmaður Sjálfstæðisflokksins setur aukið frelsi kvenna og meiri þátttöku þeirra í samfélaginu í samhengi við verri geðheilsu eða lægri fæðingartíðni, þá er verið að feta hættulega slóð. Ekki vegna þess að geðheilsa ungs fólks sé ekki alvarlegt mál. Hún er það að sjálfsögðu og við því þarf að bregðast. En þegar geðheilsa ungra kvenna er sett samhengi við menntun þeirra og atvinnuþátttöku í stað þess að helga líf sitt alfarið barneignum og heimilinu þá er umræðan komin í ógöngur. Þegar því er haldið fram að „árþúsunda náttúruval“ eigi að ráða ríkjum þá fer umræðan alla leið til þeirra tíma þar sem dregið var í efa að konur ættu að hafa nokkurt val um eigin tilveru. Raunin er sú að helsta ástæða lægri fæðingartíðni er að yngstu konurnar, oft börn, eru síður að eignast börn í dag. Enda hefur fræðsla um getnaðarvarnir stóraukist og umræða um frelsi kvenna yfir eigin líkama. Það þýðir um leið að fleiri konur hafa tækifæri til að þroskast, mennta sig og standa betur að vígi áður en þær taka stórar lífsákvarðanir eins og þessa. Orðræða sem er ætluð til að snúa til baka frá þessu er orðræða sem færir okkur aftur til fortíðar. Í átt að tímum þar sem frelsi kvenna var dregið í efa. Þessi tónn er okkur ekki nýr. Við höfum heyrt hann úr röðum Miðflokksins. En að sá tónn sé nú endurómaður úr Sjálfstæðisflokknum er hins vegar bæði sorglegt og mikið áhyggjuefni. Ekki aðeins fyrir þær konur sem börðust innan flokksins fyrir auknu frelsi kvenna heldur fyrir alla þá einstaklinga sem síðan þá hafa skapað manneskjulegra samfélag fyrir foreldra og umfram allt börnin. Ég hef sömuleiðis saknað þess að heyra frá forystu og þingflokki Sjálfstæðisflokksins í umræðu síðustu daga um fjölbreytileikann. Mér þykir leitt að sjá flokkinn hverfa af þeirri braut að standa óhikað með mannréttindum, alltaf. En er um leið þakklát fyrir að tilheyra Viðreisn í dag. Við hikum ekki við að standa með konum og hinsegin fólki í okkar samfélagi. Það er líka að standa með frelsinu sjálfu. Við eigum ekki að snúa til baka og hverfa til fortíðar. Við eigum ekki að gera lítið úr þeirri baráttu sem hefur skilað okkur hingað í dag – fremst á meðal þjóða þegar kemur að jafnrétti kynjanna. Við eigum að gera fólki kleift að taka þær ákvarðanir sem það vill taka um eigið líf. Frelsi kvenna er ekki vandamálið. Né heldur frelsi hinsegin fólks eða annarra hópa samfélagsins. Frelsi fólks til að vera það sjálft og haga lífi sínu eins og það kýs er forsenda þess að við fáum öll að blómstra í samfélaginu okkar. Við stöndum á herðum þeirra sem þorðu að breyta. Sem neituðu að sætta sig við að líf kvenna og karla væri fyrirfram ákveðið. Sem opnuðu dyrnar – ekki bara fyrir sjálf sig, heldur fyrir okkur öll. Við eigum ekki að loka þeim dyrum aftur. Að vísa í „árþúsunda náttúruval“ sem rök fyrir frelsissviptingu stórra hópa samfélagsins er hryllileg tilhugsun. Frelsi er ekki frávik frá náttúrunni. Það er súrefni samfélagsins. Við eigum aldrei að óttast það. Við eigum að verja það. Næra það. Stækka það. Því þegar frelsið víkur, víkur ekki bara réttur kvenna heldur framtíðin sjálf. Það má aldrei gerast. Höfundur er utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Viðreisn Jafnréttismál Börn og uppeldi Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar