Rýtingur frá RÚV Björn B. Björnsson skrifar 27. apríl 2026 15:01 Á opnum fundi fyrir nokkrum dögum sagði Stefán Eiríksson útvarpsstjóri að RÚV hafi ákveðið að kaupa ekkert efni af sjálfstæðum framleiðendum á þessu ári og því næsta. Mögulega verði gerðir einhverjir samningar - en fjárútlát verði engin. Ástæðan er fjárhagsþrengingar RÚV og vegna þess að til eru töluverðar birgðir af efni ætlar stofnunin að ganga á þær á næstu misserum - en spara sér innkaup á nýju íslensku efni. Til viðbótar við bága stöðu Kvikmyndasjóðs, eftir stöðugan niðurskurð síðustu árin, eru þessar fréttir reiðarslag fyrir bransann því RÚV hefur verið stærsti kaupandi íslensks efnis undanfarin ár og áratugi. Síminn og Sýn hafa keypt töluvert að leiknum sjónvarpsþáttum og einstaka kvikmyndir en RÚV hefur líka verið mjög stór aðili á þeim markaði fyrir utan að vera svo að segja eini kaupandi íslenskra heimildamynda og stuttmynda. Þessi áform RÚV þýða væntanlega að ekki verður hægt að framleiða neinar heimildar- eða stuttmynd á Íslandi næstu tvö árin og töluvert minna af kvikmyndum og leiknu sjónvarpsefni en ella væri. Skiljanlegt er að stjórnendur Rúv vilji reka stofnunina réttu megin við núllið en óskiljanlegt er að það sé gert með því að skera alveg niður innkaup á efni frá sjálfstæðum framleiðendum. Engu breytir þótt RÚV geti áfram sýnt efni sem framleitt er utan stofnunarinnar því það sé til á lager. Það má vel sýna meira af slíku efni, bæði af lagernum og nýtt efni, enda er það yfirlýst stefna RÚV að auka hlutfall slíks efnis í dagskránni umfram lögbundið hlutfall. Hver trúir því að ekki sé önnur leið til að spara í rekstri RÚV en að skrúfa alveg fyrir kaup á íslenskri kvikmyndagerð? Er ekki eðlilegra að nauðsynlegur niðurskurður gangi jafnt yfir allar deildir stofnunarinnar í stað þess a bitna allur á einum og jafn mikilvægum þætti? Það er auðvitað þægilegast fyrir stjórnendur RÚV að niðurskurðurinn komi fram hjá kvikmyndafyrirtækjum landsins en RÚV haldi öllu sínu, en þau þægindi bitna illa á íslenskri kvikmyndagerð sem þegar stendur mjög höllum fæti. Ofan á allt annað gengur þessi ætlun stjórnenda RÚV þvert gegn vilja eigenda stofunarinnar því samkvæmt könnunum vill meirihluti landsmanna sjá meira íslenskt efni á RÚV - ekki minna. Þessi áform stjórnenda RÚV eru rýtingur í bak kvikmyndagerðar á Íslandi og munu valda faginu verulegum skaða verði ekki við þeim brugðist. Höfundur er leikstjóri og framleiðandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björn B. Björnsson Ríkisútvarpið Kvikmyndagerð á Íslandi Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar