Hreinskilni í leikskólamálum Elín Anna Baldursdóttir skrifar 27. apríl 2026 08:11 Sveiflur í árgangastærðum eru náttúrulegar við verðum að hætta að nota þær sem pólitíska sigra Þegar við ræðum leikskólapláss í Hafnarfirði, og víðar, er kominn tími til að tala hreinskilið við foreldra og íbúa. Að þykjast vera að leysa vandann þegar tölurnar líta vel út, án þess að gera grein fyrir ástæðunni, er ekki merki um stjórnmál sem byggja á trausti. Sveiflur í innritun eru náttúrulegar og börnum á leikskólaldri fækkar Fjöldi barna á leikskólaaldri sveiflast á milli ára. Árgangar eru misstórir, sum ár útskrifast fleiri börn úr leikskóla en innritast. Töflur frá Hagstofu Íslands sýna þessa mynd glögglega: í Hafnarfirði ár bætast við um 40 pláss í ár þar sem innritunarárgangurinn telur 353 börn á meðan útskriftarárgangurinn er 394 börn. Á sama tíma hefur börnum á leikskólaaldri jafnframt farið fækkandi í Hafnarfiði síðasta áratuginn. Frá árinu 2012 þegar fjöldinn náði hámarki hefur börnum á leikskólaaldri fækkað um 11,9%. Þetta er einfaldlega lýðfræði. Þegar fjöldi barna sem innritast í leikskóla lítur vel út á ákveðnu ári er það ekki vegna bættrar þjónustu eða fjölgun plássa. Heldur vegna þess að viðkomandi árgangur er einfaldlega minni en sá árgangur sem útskrifaðist og að börnum á leikskólaaldri fer fækkandi. Að nota slíkar sveiflur og breytingar til að lýsa yfir pólitískum árangri er villandi og gengur gegn því trausti sem við eigum að byggja á milli stjórnmálamanna og íbúa. Við innritum ekki 14 mánaða börn í raun Önnur villa í umræðunni er þegar sagt er: „Við bjóðum upp á leikskólapláss frá 14 mánaða aldri." Þetta er formlega rétt, en í raun og veru fer stærsti hluti innritunar fram á vor- og hausttímabili. Bæjarstjóri Hafnarfjarðar lýsti yfir stolti haustið 2025 þegar öll 15 mánaða börn höfðu fengið leikskólapláss en í raun var meðalaldur barna sem hófu leikskóladvöl haustið 2025 17,7 mánuðir. Ég veit að það eru bara ungbarnaforeldrar sem tala um aldur í mánuðum svo við skulum taka dæmi: barn sem fætt er í september árið 2025 og er 1 árs við innritunartímabil leikskólana um haustið, það barn kemst ekki inn á leikskóla fyrr en ári síðar í september 2026 þá 2 ára gamalt. Foreldrar sem eiga barn sem fæðist á „röngum" tíma ársins bíða lengur, hvort sem við viðurkennum það eða ekki. Í Hafnarfirði greiða þessir foreldrar síðan tvisvar eða þrisvar sinnum meira fyrir pláss hjá dagforeldri en foreldrar barna sem fædd eru á „réttum" tíma ársins. Framtíðin krefst heiðarlegrar umræðu Við verðum að horfast í augu við það: leikskólamálin eru flókin og lausnirnar taka tíma. Þess vegna er svo mikilvægt að lögfesta leikskólastigið sem fyrsta skólastig. Í dag er rekstur leikskóla ekki lögbundinn á sama hátt og grunnskólar. Það þýðir að sveitarfélög gætu í þrengingum dregið úr eða jafnvel hætt rekstri. Sveitafélög geta þröngvað tekjulægra fólki til að stytta dagvistunartíma eða þróunin orðið einkavæðing, þar sem stór fyrirtæki reka leikskóla og atvinna foreldra ræður því hvort barn fær pláss. Það er ekki framtíðin við viljum. Íslenskir leikskólar eru framúrskarandi Ég hef sjálf reynslu af leikskólum í Danmörku og get sagt af fullri sannfæringu: íslenskir leikskólar eru framúrskarandi. Fagfólkið sem starfar þar er ótrúlegt. Við eigum að vera stolt af þeirra starfi og verðum að hlúa vel að mannauðnum. Það er helsta ástæðan fyrir því að við verðum við að tryggja leikskólana með lögum og fjármagni. Við þurfum líka markvisst að leita leiða til að fjölga leikskólakennurum sem starfa með börnunum okkar. Við eigum ekki að nota leikskólamálin í pólitísku áróðursskyni þar sem við hreykjum okkur af því þegar tölurnar líta vel út og þegjum þegar þær líta illa út. Við eigum að horfa fram á veginn, lögfesta leikskólann eins og Samfylkingin hefur lagt til. Því ber að fagna að ríkisvaldið sé loksins tilbúið til að eiga samtal við sveitarfélögin um þetta skref. Samtalið snýst um hvernig við útfærum það, þar eru margar leiðir sem hægt er að fara og mikilvægt að viðeigandi aðilar komi að borðinu. En þangað til við finnum leiðina og þetta verður að veruleika, þá þurfum við að aðstoða þær fjölskyldur sem bíða. Þá verðum við líka að tala heiðarlega og af raunsæi um málefnið því hér er um alvöru málefni að ræða. Höfundur er sálfræðingur og frambjóðandi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar