Skugginn sem eltir: Þegar einelti fullorðinna fær að þrífast Ólafur Björn Guðmundsson skrifar 27. apríl 2026 07:42 Einelti er ekki bara eitthvað sem gerist í frímínútum á skólalóðinni. Fyrir marga er það skuggi sem fylgir manni inn í fullorðinsárin, litar sjálfsmyndina og hefur áhrif á hvernig við tökumst á við heiminn. Sem barn sem var lagt í harkalegt einelti – þrátt fyrir að eiga vini, standa mig vel í skóla og vera virkur í íþróttum – skildi ég aldrei af hverju ég var skotmark. Þessi reynsla skildi eftir sig sár sem gerðu mig síðar meir að auðveldu skotmarki fyrir óréttlæti á vinnustöðum og í félagslegum samskiptum fullorðinna. En þessi erfiða reynsla hefur líka gefið mér dýrmæta, en sársaukafulla, ofur-vitund. Ég finn það strax þegar fullorðið fólk notar orð eða gjörðir til að niðurlægja aðra í þeim tilgangi að upphefja sjálft sig eða ná fram eigin hagsmunum. **Þegar valdið er notað sem vopn** Það er sláandi að fylgjast með fólki í áhrifastöðum sýna af sér hegðun sem einkennist af einelti. Við sjáum þetta í hagsmunabaráttu verkalýðsfélaga, þar sem harka í garð einstaklinga virðist stundum vega þyngra en málefnin sjálf. Þegar forysta eins félags, líkt og dæmin sýna með Eflingu, herjar á forystu annars félags eins og VR með persónulegum aðdróttunum, þá er það ekki lengur málefnaleg barátta – það er niðurbrot. Enn alvarlegra er þegar kjörnir fulltrúar á Alþingi nota stöðu sína til að sá sundrung. Má þar nefna orðræðu varaformanns Miðflokksins varðandi regnbogafána í skólum. Með því að gera tákn um kærleika og viðurkenningu að pólitísku bitbeini, er ráðist gegn hópi ungs fólks sem sögulega hefur verið útskúfaður. Það er hrollvekjandi að fylgjast með hvernig „háttvirtir“ þingmenn sá þessari illsku hjá óþroskuðum einstaklingum sem eru annars að móta með sér umburðarlyndi. Að fórna velferð viðkvæmra minnihlutahópa fyrir eigin athyglissýki og pólitíska hagsmuni er ekkert annað en kerfisbundið einelti. **Að þekkja muninn á gagnrýni og ofbeldi** Fyrir okkur sem höfum upplifað einelti er munurinn á málefnalegri gagnrýni og andlegu ofbeldi skýr. Einelti fullorðinna er oft lúmskt; það felst í þöggun, undirliggjandi kaldhæðni eða beinum árásum undir því yfirskini að vera „bara að segja sannleikann“. En undir niðri liggur alltaf sama þörfin: að ná völdum með því að draga úr öðrum. Ég velti því oft fyrir mér hvort þessir gerendur hafi sjálfir verið þolendur eineltis einhvern tímann. Ef svo er, þá verður að segjast að það eru til miklu heilbrigðari leiðir til að lækna gömul sár en að ráðast á persónur, hópa eða hugmyndafræði sem stuðlar að betra samfélagi. Að valda öðrum skaða til að lækna eigið sjálfstraust er vítahringur sem engum þjónar. **Ábyrgð okkar allra** Við eigum að krefjast meira af þeim sem leiða samfélagið okkar. Ef stjórnendur og stjórnmálamenn komast upp með að nota eineltisaðferðir til að ná sínu fram, hvaða skilaboð erum við þá að senda börnunum okkar? Það tók mig mörg ár að átta mig á því að gagnrýni annarra segir meira um þá sjálfa en mig. Í dag nota ég mína reynslu til að standa með þeim sem verða fyrir óréttlæti. Við megum ekki láta eineltið stjórna okkur, hvorki í minningunni né í daglegu lífi. Við þurfum að rjúfa þögnina og benda á það þegar þeir sem eiga að vera fyrirmyndir breytast í gerendur sem grafa undan samfélagsgerðinni fyrir eigin framgang. Gleðilegt sumar með umburðarlyndi og náungakærleik í fyrirrúmi. Höfundur er hótelrekstrarfræðingur, frumkvöðull, eiginmaður, faðir, afi og þolandi eineltis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar