Skóli án aðgreiningar krefst raunverulegrar þjónustu Elín Anna Baldursdóttir skrifar 25. apríl 2026 09:31 Skólar eru einn mikilvægasti hornsteinn samfélagsins og lykill að jöfnuði. Þar læra börn ekki aðeins lestur og reikning heldur gagnrýna hugsun, samskipti og félagsfærni. Skólinn á líka að vera öruggur staður sem styður vellíðan og veitir rútínu. Vegna skólaskyldu er hann jafnframt sá vettvangur sem nær best til allra barna og getur greint og brugðist snemma við vanda. Skólarnir eru stærsti hluti rekstrar sveitarfélagsins. Það eitt og sér ætti að gera það að forgangsverkefni okkar að tryggja að kerfið virki sem best og að við séum stöðugt að leita leiða til að gera enn betur. Staðan í dag Gögn sýna alvarlegar áskoranir. Niðurstöður PISA benda til þess að íslenskir nemendur standi undir meðaltali OECD í öllum greinum. Samkvæmt OECD (2025) segjast um fimmtungur íslenskra kennara á unglingastigi upplifa streitu í vinnunni sem er ívið hærra hlutfall en í samanburðarlöndum (OECD, 2025). Þrír helstu streituþættirnir eru að aðlaga kennslu að nemendum með sérþarfir, viðhalda agastigi í bekk og bera ábyrgð á félagslegri og tilfinningalegri líðan nemenda. Samkvæmt könnun Velferðarvaktarinnar (2019) glíma um 2,2% grunnskólanema við skólaforðun en rannsóknaraðilar telja að talan sé líklega hærri þar sem skráning á fjarvistum er ábótavant víða. Meðal helstu ástæðna nefna skólastjórnendur andlega vanlíðan nemenda eins og kvíða og þunglyndi. Við erum með frábæra kennara en biðjum þá um of mikið. Þeir eru ekki menntaðir til að sinna hlutverki sálfræðinga, félagsráðgjafa, atferlisfræðinga og sérkennara samtímis. Hlutfall kennara án réttinda hefur farið hækkandi síðustu ár sem er staða sem taka þarf alvarlega. Menntakerfið okkar er undir of miklu álagi og við þurfum að bregðast við, bæta starfsumhverfi, styðja við kennara og geðheilbrigði barna. Skóli án aðgreiningar krefst þjónustu Hugmyndafræðin um skóla án aðgreiningar byggir á því að hvert barn eigi rétt á að tilheyra. Í Finnlandi fylgdi þessari stefnu raunveruleg uppbygging stuðnings innan skólanna. Þegar Finnland tók upp þessa stefnu fór hlutfall barna í sérkennsluúrræðum úr 2% í 17%, ekki vegna þess að börnin breyttust, heldur vegna þess að kerfið fór að greina þarfirnar fyrr. Í Finnlandi fylgdi þjónustan stefnunni. Þar fá börn þann stuðning sem þau þurfa inni í bekknum og gripið er snemma inn í. Munurinn á Íslandi og Finnlandi liggur ekki í stefnu heldur þjónustu. Stuðningur á réttum tíma Árangursríkt kerfi eins og í Finnlandi byggir á þremur þrepum: 1. þrep: Góð kennsla fyrir alla. Kennari aðlagar verkefni og fylgist með þróun hvers barns. Þetta á að vera grunnurinn. 2. þrep: Snemmbær hjálp. Börnin sem sýna vísbendingar um vanda fá stuðning í litlum hópum, á skólatíma, í samvinnu sérkennara og umsjónarkennara. Þetta er mögulega mikilvægasta stigið, hér er hægt að grípa inn áður en lítill vandi verður of mikill. 3. þrep: Sérhæfð þjónusta. Mat hjá skólasálfræðingi, sérkennsla og þverfaglegt samstarf fagfólks. Í dag virkar kerfið oft öfugt; börn fá ekki stuðning fyrr en vandinn er orðinn mikill sem krefst þriðja þreps. Slík nálgun er mun dýrari heldur en að bregðast við á fyrri stigum Deildarstjóri sérkennslu er lykilhlutverk Lykilmanneskja þessa kerfis er deildarstjóri sérkennslu. Hlutverk hans er ekki bara að bregðast við vandanum heldur koma í veg fyrir að vandi vaxi. Starfið felst í að styðja kennara, greina þarfir snemma og samhæfa þjónustu. Í Hafnarfirði er staða deildarstjóra sérkennslu oft hlutastarf, sem þýðir að tíminn fer í brýn mál og lítið svigrúm er til snemmtækrar íhlutunar. Þá er verið að slökkva elda í stað þess að koma í veg fyrir þá. Eða að skólarnir þurfa að nýta aðra sérkennslutíma í að fylla upp í stöðugildið sem kemur niður á sérkennslu skólans við nemendur. Reynsla Norðurlanda sýnir að þegar hlutverk deildarstjóra sérkennslu er sinnt eins lýst var hér að ofan, dregur úr þörf fyrir dýr sérúrræði síðar. Því er nauðsynlegt að auka þessi stöðugildi í skólum í Hafnarfirði. Styrkja stoðþjónustu og geðheilbrigði Stærstu áskoranir kennara tengjast hegðunar- og tilfinningavanda nemenda. Það krefst sérfræðiaðstoðar. Bandaríska skólasálfræðingafélagið (NASP) mælir með að hlutfallið sé einn skólasálfræðingur á 500 nemendur, ef sálfræðingurinn á að geta sinnt fleiru en slökkvistarfi. Hlutfall skólasálfræðinga er langt frá þessu faglegu viðmiðum og börn bíða of lengi eftir þjónustu. Stærsti hluti starfs skólasálfræðings er að sinna frumgreiningum. Greiningar opna oft leið að stuðningi og vegna þess að greiningar opna á þjónustu, er eftirspurnin gríðarleg og biðlistarnir langir. Það er því nauðsynlegt að kerfið tryggi að börn fái aðstoð óháð greiningu. Þá gætu sálfræðingar við skóla haft svigrúm til þess að sinna forvörnum og snemmtækri íhlutun og aðstoðað börn sem glíma við tilfinninga- og hegðunarvanda. Stoðþjónustan eins og sálfræðimeðferð þarf að vera þrepaskipt, líkt og stuðningur í námi. Leggja þarf meiri áherslu á lágþröskulda úrræðum, við kvíða, hegðun og vanlíðan. Eins og fram kom hér að ofan er skólinn frábær vettvangur til þess að sinna fyrsta þrepi í geðheilbrigði barna og unglinga. Rannsóknir sýna að líðan getur haft áhrif á námsárangur og með bættri líðan drögum við einnig úr álagi á kennara sem veitir þeim svigrúm til að sinna sínum störfum. Fjárfestum í því sem skiptir máli Skóli án aðgreiningar er góð hugmyndafræði en hún krefst raunverulegrar fjárfestingar. Í dag höfum við sett markmið án þess að tryggja tæki og stuðning til að ná þeim. Niðurstaðan er kerfi þar sem kennarar standa einir, stuðningur kemur of seint og börn bíða og lengi eftir viðeigandi þjónustu. Samfylkingin í Hafnarfirði vill breyta þessu með því að: gera stöður deildarstjóra sérkennslu að fullu starfi styrkja stoðþjónustu og fjölga sérfræðingum í skólunum innleiða skýrt þrepaskipt kerfi Auka aðgengi að úrræðum til að bæta geðheilbrigði barna og unglinga Þetta er fjárfesting sem skilar sér til seinni tíma og því nauðsynlegt að við förum að hugsa um menntamál og velferð barna til framtíðar. Það er ódýrara að grípa inn snemma en að bregðast við þegar vandinn er orðinn mikill. Við þurfum að laga kerfið að börnunum ekki öfugt. Tækifærin til breytinga í Hafnarfirði verða 16. maí með því að setja X við S. Höfundur er sálfræðingur og frambjóðandi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Heimildir: Velferðarvaktin (2019). Könnun um skólasókn og skólaforðun í grunnskólum. Maskína fyrir Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið. OECD. (2025). Results from TALIS 2024: Iceland. OECD Publishing. https://doi.org/10.1787/90df6235-en Moberg, S., & Zumberg, M. (1994). Inclusive education in Finland: Present and future perspectives. Psychological Reports, 75(3), 1519–1528. https://doi.org/10.2466/pr0.1994.75.3f.1519 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar