Getnaðarsigur og fullnægjandi árangur María Ellen Steingrímsdóttir skrifar 24. apríl 2026 07:32 Það eru góð tíðindi að 12 mánaða börn fædd í ágúst 2025 fái leikskólapláss í haust í Kópavogi. Sérstakar hamingjuóskir til þeirra foreldra sem höfðu þá framsýni að eignast barn akkúrat á réttum tíma, eins og Silja vinkona mín. En við skulum líka tala hreint út það hvernig þessum árangri er náð. Árangursmælingar Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi fagnar árangri. Ég set þó spurningarmerki við hvernig þeim árangri var náð. Árangurinn náðist ekki vegna þess að leikskólaplássum fjölgaði umtalsvert eða vegna þess að biðlistar hurfu. Hann náðist með því að minnka viðveru barnanna. Það er gott að starfsumhverfi leikskólanna sé að batna og við verðum að standa vörð um það. En það er ekki nóg að laga kerfið með plástrum ef reikningurinn endar alltaf hjá foreldrum og kalla það árangur með upphrópunum í fjölmiðlum í aðdraganda kosninga. Þegar foreldrar neyðast til að stytta viðveru barna sinna vegna fjárhagslegra þvingana og þurfa að draga úr starfshlutfalli eða treysta á baklandið (sem þó aðeins sumir eiga), þá minnkar auðvitað álagið á undirmönnuðu og undirfjármagnaða kerfinu. Í Kópavogi sjáum við líka í fyrsta sinn í langan tíma fækkun á barnafjölskyldum. Færri börn skila okkur einmitt líka minni eftirspurn. Þetta er þó skammgóður vermir þar sem við vitum að foreldrar ungra barna eru stærsta tekjulind sveitafélaganna ef við horfum til langtímabúsetu. Við í Viðreisn viljum sjá raunverulegan árangur. Hann næst ekki þegar færri geta nýtt þjónustuna. Hann næst þegar allar fjölskyldur geta treyst því að börnin þeirra fái leikskólapláss og góða þjónustu án þess að það velti fjárhagslegu og skipulagslegu álagi yfir á heimilin. Getnaðarsigur Mér þætti áhugavert að fá upplýsingar um hversu gömul elstu börnin eru sem loksins fá leikskólapláss í haust. Það segir okkur miklu meira um raunverulega stöðu mála. Ég þekki dæmi um börn fædd sumarið 2024 sem eru nú loksins að fá boð um leikskólapláss og verða því orðin tveggja ára þegar leikskólagangan hefst. Sonur minn, fæddur að hausti, komst sjálfur ekki inn fyrr en tæplega tveggja ára, núna í fyrra. Það skiptir nefnilega máli hvoru megin við línuna barn lendir. Það eru því enn fjölskyldur sem sitja eftir og draga stutta stráið og hittu ekki inn í árangursmælinguna. Fjölskyldur sem neyðast til að brúa bilið með dagforeldrum, skertu starfshlutfalli eða með því að teygja sig fjárhagslega langt umfram það sem eðlilegt getur talist, mega ekki gleymast. Það verður að tala til þeirra líka. Við í Viðreisn viljum mæta þessum hópi betur. Ef fjölskyldur þurfa að nýta önnur dagvistunarúrræði vegna skorts á leikskólaplássi á bærinn að tryggja að þær greiði sambærilegt gjald og fyrir leikskóla. Það er einfaldlega sanngirnismál. En til hamingju Silja með leikskólaplássið! Höfundur er oddviti Viðreisnar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar