Lýðfullveldi Aðalstein Júlíus Magnússon skrifar 22. apríl 2026 12:47 Áður en afstaða er tekin til þess hvernig við viljum skipuleggja vald á Íslandi er nauðsynlegt að skýra nokkur lykilhugtök. Fullveldi segir til um hvar æðsta valdið liggur. Lýðræði snýst um hvernig því valdi er beitt. Lykilhugtakið hér er þó lýðfullveldi — að valdið liggi hjá þjóðinni sjálfri. Í dag búum við við lýðfullveldi. Hver Íslendingur er í raun einn af um rúmum 300.000 einstaklingum sem hafa bein áhrif á stjórnun landsins. Valdið á rætur sínar í þjóðinni sem kýs sér stjórn til að fara með valdið í hennar umboði. Sögulega hefur þessi réttur verið unninn með afgerandi stuðningi þjóðarinnar. Árið 1918, þegar Ísland varð fullvalda ríki, og árið 1944, þegar lýðveldi var stofnað, var stuðningur ekki aðeins meirihluti heldur nánast einróma. Þessar ákvarðanir endurspegluðu skýran vilja til að tryggja að valdið lægi hjá þjóðinni sjálfri. Saga Íslands sýnir jafnframt að þegar vald er framselt út fyrir landið getur reynst mjög erfitt að fá það aftur. Með Gamla sáttmála 1262 færðist vald frá landinu eftir innanlandsátök, og það tók aldir að endurheimta það. Almennt gildir sú regla að þegar lítil þjóð framselur vald sitt verður endurheimt þess bæði flókin og langvinn. Ef Ísland gengi inn í Evrópusambandið mundi þetta grundvallaratriði síst breytast. Hluti fullveldis færist til yfirþjóðlegra stofnana og vægi hvers kjósanda minnkar verulega. Í stað þess að vera einn af um rúmum 300.000 einstaklingum verður hver Íslendingur aðeins einn af um 450 milljónum þegnum Evrópusambandsins. Í Evrópuþinginu fengi Ísland um 6 þingmenn af 720. Áhrif þeirra á meirihlutaákvarðanir væru afar takmörkuð. Evrópuráðið er ekki kosið beint af almenningi sem heild, heldur skipað þjóðarleiðtogum. Á sama tíma hefur þróunin verið í átt að stórauknu mikilvægi meirihluta ákvarðana á kostnað neitunarvalds ríkja, sem dregur úr áhrifum smærri þjóða til samræmis. Afleiðingin er sú að lýðfullveldi Íslendinga veikist verulega og stefnir, í hlutfallslegum skilningi, að núlli. Valdið liggur þá ekki lengur hjá þjóðinni sjálfri með sama beinum hætti og áður. Formlega er mögulegt fyrir ríki að segja sig úr slíkum samböndum. En fyrir litlar þjóðir getur það reynst erfitt í framkvæmd, þegar hagsmunir og þrýstingur stærri aðila er tekin inn í myndina. Óframkvæmanlegt í raun. Kjarni málsins er því skýr: viljum við halda í lýðfullveldi, þar sem þjóðin ræður eigin málum með raunverulegu vægi, eða færa það vald til kerfis þar sem áhrif okkar verða smám saman jaðarsett og stefna að núlli? Höfundur er hagfræðingur og líffræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Sjá meira
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar