Inga Tinna keypti 342 fermetra höll Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 8. maí 2026 12:10 Inga Tinna var að festa kaup á glæsilegu einbýlishúsi. Dineout-drottningin og fagurkerinn Inga Tinna Sigurðardóttir hefur fest kaup á glæsilegu einbýlishúsi við Dalprýði 13 í Garðabæ. Hún á helmingshlut í eigninni á móti föður sínum, Sigurði Páli Harðarsyni.
Inga Tinna seldi þakíbúð sína í byrjun árs í Borgartúni en nýja húsið við Dalprýði er 342 fermetrar að stærð. Ásett verð hússins var 350 milljónir íslenskra króna og keypti þau feðgin húsið af hjónunum Jóni Trausta Ólafssyni og Eddu Björk Kristjánsdóttur. Inga Tinna er ein öflugasta athafnakona landsins, rekur Dineout og Sinna svo eitthvað sé nefnt. Inga Tinna á dóttur með handboltagoðsögninni Loga Geirssyni og opnaði sig meðal annars um tilfinningar sínar til kappans í október síðastliðnum. Nýja húsið er í jaðri byggðar í enda Dalprýði, þar sem lóðin liggur að ósnertu hrauni. Þess er gætt að lóðin, sem er 821,8 fermetrar, falli vel að umhverfinu. Óheft útsýni yfir nyrsta hluta Garðahrauns allt til Bessastaða og sjávar þar sem sólsetrið og Snæfellsjökull njóta sín til fulls. Húsið er sérlega glæsilegt, hannað af Pálmari Kristmundssyni arkitekt, með mikilli lofthæð í meginrýmum, glæsilegum póstalausum útsýnisgluggum og skjólsælum sólpöllum þar sem húsið myndar hálfhring um útisvæðið sem snýr til suðurs og heitum potti. Sérstaklega er horft til staðsetningar, náttúru og umhverfis við hönnun hússins til að glæsilegt útsýnið njóti sín sem best. Húsið er byggt á þremur pöllum, sem tryggir að svefnrými eru mjög prívat en um leið með góðu aðgengi að sameiginlegum rýmum. Mikil lofthæð, gott pláss, mikil birta og glæsileg hönnun einkenna húsið, en innanhússhönnun var í höndum Sæju. Arinn og hátt til lofts.Eignamiðlun Heitur pottur og stór pallur.Eignamiðlun Glæsilegt og einstakt einbýli.Eignamiðlun Húsið er á þremur pöllum.Eignamiðlun Stórir gluggar.Aðsend
Fasteignamarkaður Hús og heimili Garðabær Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Fleiri fréttir Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sjá meira