Stórslasaður eftir að hafa verið blindfullur á hjóli Sindri Sverrisson skrifar 22. apríl 2026 09:32 Robert Kranjec þekkir það vel að ferðast á ógnarhraða á skíðum en virðist einnig hafa verið á mikilli ferð á reiðhjóli sínu og auk þess mjög ölvaður. Getty/Stanko Gruden Slóvenska skíðastökkshetjan og ÓL-verðlaunahafinn Robert Kranjec endaði á sjúkrahúsi, alvarlega slasaður, eftir hjólreiðaslys. Samkvæmt slóvenskum miðlum var hann mjög ölvaður þegar slysið varð og sætir nú lögreglurannsókn.
Slysið mun hafa orðið með þeim hætti að Kranjec hjólaði yfir á öfugan vegarhelming og upp á kant með þeim afleiðingum að hann féll og slasaðist alvarlega. Slóvenska skíðasambandið hefur staðfest að Kranjec liggi á sjúkrahúsi. „Við viljum upplýsa ykkur um að Robert Kranjec slasaðist alvarlega eftir að hafa dottið af hjólinu sínu og er hann nú í meðferð á sjúkrahúsi. Heilsufar hans er stöðugt og á næstu dögum mun hann hefja endurhæfingu, sem verður löng og krefjandi,“ segir í yfirlýsingu sambandsins. Samkvæmt Slovenske Novice hefur lögreglan nú hafið rannsókn á tildrögum slyssins og gæti Kranjec hlotið dóm fyrir brot á umferðarlögum. Miðillinn hefur þær upplýsingar frá lögreglunni að Kranjec hafi mælst með 2,5 prómill af áfengi í blóði. Þó að Kranjec, sem er 44 ára og vann ÓL-brons árið 2002, sé hættur að keppa í skíðastökki þá hefur hann áfram hjálpað slóvenska landsliðinu með því að sníða og sauma keppnisföt.
Skíðaíþróttir Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Rahm segist vilja rifta við LIV Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Sérfræðingar skilja ekki landsliðsþjálfarann Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Arteta framlengir við Arsenal Fékk „brjálæðislegt“ magn rasískra skilaboða eftir umdeilt atvik Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Mun ekki stíga aftur á völlinn það sem eftir er tímabilsins Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-71| Grindavík sterkari á lokasprettinum Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ KR vann erkifjendurna sannfærandi „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Sjá meira