Takk fyrir lánið, Elliðaárdalur! Heiða Aðalsteinsdóttir skrifar 21. apríl 2026 10:02 Í meira en hundrað ár hefur Elliðaárdalur verið vettvangur framfara, en með virkjun Elliðaánna árið 1921 var grunnur lagður að rafvæðingu í Reykjavík og raforka framleidd fyrir ört vaxandi borgarsamfélag. Raforkumannvirkin í dalnum gegndu þar lykilhlutverki. En hvað gerum við þegar þau hafa lokið hlutverki sínu? Samkvæmt vatnalögum ber Orkuveitunni skylda til að færa umhverfið aftur til fyrra horft eins og kostur er. Í Elliðaárdal stendur nú yfir vinna sem fá dæmi eru um hér á landi: að leggja niður vatnsaflsvirkjun og endurheimta það vistkerfi sem var rofið með virkjun ánna. Náttúran tekur við sér Fyrstu skrefin hafa þegar verið stigin. Botnlokur Árbæjarstíflu voru opnaðar varanlega árið 2020 og rennsli ánna þannig gefið frjálst. Árangurinn hefur verið skjótur og afgerandi. Árbæjarkvíslin, þar sem áhrifa lónsins gætti áður, skilar nú sérlega góðu búi þar sem þéttleiki seiða hefur aukist marktækt. Niðurstöður Jóhannesar Sturlaugssonar fiskifræðings sýna að heildarganga hrygningarlaxa í Árbæjarkvísl jókst úr 2% árið 2021 í 14% árið 2025. Við þetta má bæta að 2025 var stærsta árlega ganga laxa í Elliðaárnar frá því að árleg vöktun með fiskteljara hófst árið 1989. Varanleg tæming lónsins hefur því skilað tilætluðum árangri fyrir lífríkið. Spor sögunnar varðveitt En endurheimt dalsins snýst ekki aðeins um umhverfið. Hún snýst líka um samfélagið. Raforkumannvirkin í Elliðaárdal hafa verið hluti af sögu okkar í meira en öld og voru friðuð sem slík árið 2012. Má því segja að við niðurlagningu Elliðaárvirkjunar togist á tvö sjónarmið - að færa umhverfið aftur til fyrra horfs og að varðveita menningarsögulegar minjar. Orkuveitan hefur átt í góðu samráði við Minjastofnun Íslands í þessu verkefni og í samræmi við heimild stofnunarinnar er nú gert ráð fyrir að fjarlægja hluta Árbæjarstíflu, en að halda í stólpa frá öllum byggingartímum hennar. Þeir verða nýttir áfram sem undirstaða fyrir nýja upplifunarbrú, sem er hönnuð með aðgengi fyrir öll í huga. Þannig helst þessi mikilvæga tenging yfir Elliðaárnar, en með auknu öryggi og betra aðgengi. Sama má segja um aðrennslispípu meðfram Rafstöðvarvegi sem í dag gegnir hlutverki óformlegar gönguleiðar. Í pípustæði aðrennslispípunnar kemur nýr og spennandi minjaás þar sem pípan og saga hennar er gerð sýnileg og aðgengileg vegfarendum öllum. Staður ársins 2025 Elliðaárdalur er mest sótta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins og lesendur hafa ef til vill notið þess að sækja Elliðaárstöð heim. Þessi lifandi áfangastaður, sem hefur meðal annars að markmiði að miðla sögu staðarins, hlaut hönnunarverðlaun Íslands í flokknum „Staður ársins“ árið 2025. Nú er komið að næsta áfanga í að skila dalnum aftur til náttúrunnar og samfélagsins og Reykjavíkurborg og Orkuveitan bjóða til opinna húsa í Gestastofu Elliðaárstöðvar 28. og 29. apríl n.k. kl. 16-18. Við hlökkum til að eiga spjall um dalinn, árnar og útivistina. Höfundur er landslagsarkitekt og verkefnisstjóri hjá Orkuveitunni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Sjá meira
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar