Eineltissamfélagið Ísland – umfjöllun Berlingske Tidende um Ísland Sigríður Svanborgardóttir skrifar 20. apríl 2026 11:18 Umfjöllun erlendra miðla um Ísland getur skipt meira máli en margir gera sér grein fyrir, ekki bara fyrir danska lesendur heldur líka fyrir íslenskan almenning. Það skiptir máli þegar einhver utan frá sér það sem svo margir inni í kerfinu hafa vanist að afsaka, milda eða þegja um. Ísland er gjarnan selt út á við sem friðsælt, hreint og siðað lýðræði. En undir þeirri mynd er samfélag sem hefur lengi verið mótað af kúguðu fámenni, sérhagsmunum, persónulegum tengslum, ótta og félagslegri stjórnun. Ég ólst upp í Kaupmannahöfn en flutti til Íslands fjórtán ára gömul. Ég fann mjög fljótt að ég var að koma inn í samfélag sem var lokað á annan hátt en fólk utan frá áttar sig á. Ekki endilega með sýnilegum múrum heldur með ósýnilegum reglum, tengslanetum, klíkum og þessari stöðugu tilfinningu að maður ætti annaðhvort að aðlagast stemningunni eða sætta sig við að standa fyrir utan. Ég strögglaði í áratugi við að skilja þetta, og í raun að reyna að tilheyra samfélagi sem mér fannst sífellt senda þau skilaboð að aðgangur, vernd og virðing færu ekki eftir heiðarleika eða hæfni heldur eftir því hver þekkti hvern, hver þagði, hver hlýddi, hver spilaði með og hver var nýtanlegur. Þess vegna finnst mér þessi umræða svo mikilvæg. Hún bendir á eitthvað sem margir Íslendingar finna fyrir en eiga erfitt með að orða: að þetta snýst ekki bara um fisk, kvóta eða efnahagslegt vald. Þetta er líka samskipta menning sem hefur farið svo ílla fyrir íslenskan almenning. Menning þar sem vald er varðveitt með tengslum, þöggun, útilokun og stöðugri áminningu um að sá sem talar of hátt geti tapað meiru en bara vinsældum. Í svona litlu samfélagi verða orðspor, kjaftasögur og félagsleg staða að valdatæki. Sögur um fólk eru oft ekki bara tilviljunarkenndar. Þær eru búnar til, ýktar, látnar ganga og notaðar til að setja fólk á sinn stað. Elíturnar velja hverjir fá að vera „með“ og hverjir eiga að vera „úti“, þetta er eitt áhrifamesta stjórntæki sem til er í svona fámenni. Það er hér sem það sem margir upplifa sem eineltissamfélag verður sýnilegt. Ekki endilega sem hefðbundið einelti með beinum árásum, heldur sem fínstillt félagslegt mynstur þar sem útilokun, þöggun og orðrómur eru notuð til að halda fólki á tánum. Þetta er einelti sem fer sjaldan fram opinberlega, en er samt öllum ljóst sem lifa inni í því. Það er einelti sem virkar einmitt vegna þess að það er dreift, normalíserað og erfitt að benda á einn geranda, og þess vegna lifir það svo góðu lífi sem vopn gegn almenningi. Daglegt andrúmsloft þöggunar og útilokunar Það sem mér finnst vanta enn skýrar inn í erlenda umfjöllun er hversu djúp áhrif þetta hefur á almenning. Þetta er ekki abstrakt umræða um spillingu. Þetta er daglegt andrúmsloft. Fólk þorir ekki að tala vegna þess að það veit að afleiðingarnar geta lent á því sjálfu, maka þess, börnum, systkinum eða atvinnu. Fólk veit að það þarf ekki einu sinni formlega refsingu; það dugar oft að vera settur út í kuldann, sniðgenginn, gerður tortryggilegur eða látinn bera orðróm sem síðan lifir sjálfstæðu lífi. Í litlu landi þar sem næstum allir tengjast með einhverjum hætti verður þetta að mjög skilvirku kerfi félagslegrar stjórnunar. Ég tel líka mikilvægt að benda á að þetta snýst ekki bara um sjávarútvegselítu í þröngum skilningi heldur um víðara valdakerfi í öllum stéttum, líka í undirheimunum. Að mínu mati hefur dómskerfið, lögreglan, stjórnsýslan og hlutar heilbrigðiskerfisins of oft virkað þannig að almenningur upplifir ekki jafnræði heldur tvöfalt kerfi: eitt fyrir þá sem hafa tengsl, vernd og bakland, og annað fyrir þá sem hafa það ekki. Ég segi þetta sem manneskja sem hefur fylgst með, upplifað hvernig valdið ver sjálft sig. Þegar sömu tengslin liggja milli atvinnulífs, stjórnmála, fjölmiðla, lögmanna, embættismanna, listamanna og annarra áhrifafólks, þá veikist traustið að sjálfsögðu. Þá fer fólk að upplifa að kerfin starfi ekki fyrst og fremst samkvæmt lögum eða réttlæti heldur samkvæmt tengslum og þægindum þeirra sem fyrir eru inni. Þess vegna er svo alvarlegt þegar fólk utan Íslands heldur enn í þá einfaldu mynd að þetta sé bara lítið norrænt fyrirmyndarsamfélag með smá sérvisku. Fámennið er ekki saklaust í þessu. Fámennið hefur hjálpað til við að viðhalda stemningu þar sem allir passa sig á öllum, allir þekkja alla, og mjög margir eru á einn eða annan hátt skyldir, tengdir eða háðir hver öðrum. Við þessar aðstæður verður mjög auðvelt að nota fólk sem peð. Sumir eru keyptir, sumir hræddir, sumir þaggaðir, sumir dregnir inn í leikinn vegna þess að þeir vilja tilheyra. Aðrir læra einfaldlega að lifa af með því að segja sem minnst. Ekki bara „vondir“ og „góðir“ heldur sömu lokuðu klíkurnar Mér finnst líka mikilvægt að jafnvel þeir sem tala opinberlega gegn kerfinu eru ekki endilega alltaf eins einfaldir og þeir virðast. Til dæmis er þingmaður sem hefur komið fram sem gagnrýnin rödd, að mínu mati ekki maður sem hægt er að setja fram sem hreint mótvægi við spillta menningu án frekari gagnrýninnar skoðunar. Ég skrifaði sjálf gagnrýna grein í fyrra um mál sem tengdist honum, þar sem ég benti á hvernig pólitík á Íslandi virðist of oft vera notuð sem stökkpallur fyrir sérhagsmuni, viðskipti og tengingar á gráu svæði fremur en þjónusta við almenning. Ég nefni þetta til að undirstrika hversu djúpt þetta mynstur liggur: það dugar ekki að skipta fólki upp í „vonda“ og „góða“ valdafólkið eins og þetta sé einföld saga. Raunin er sú að sama kerfið leyfir forréttindafólki að ganga á milli hlutverka eftir hentugleika, á meðan menningin sjálf, hvítþvotturinn, tvískinnungurinn og þægindin við að líta undan,....helst óbreytt. Ég hef sjálf skrifað um þessi mál í íslensku samfélagi, bæði á samfélagsmiðlum og í íslenskum fjölmiðlum. Ég reyndi líka lengi að finna vinnu á íslandi eftir vafasama uppsögn á mér hjá Icelandair, og það var eins og það væri búið að blacklista mig eftir að ég talaði opinskátt um réttindabaráttu hjá félaginu. Ég gafst upp og flutti aftur til danmerkur. En ég veit líka með fullri vissu að ef ég byggi enn á Íslandi væri miklu erfiðara fyrir mig að skrifa jafn opinskátt og ég hef verið að gera . Það eitt segir mér mikið. Að geta aðeins talað frjálsar þegar maður er kominn út úr samfélaginu er merki um að eitthvað sé mjög óheilbrigt. Það er ekki heilbrigt samfélag þegar fólk þarf fjarlægð til að treysta sér til að segja sannleikann eins og það upplifir hann. Tölurnar um búsetu erlendis segja líka sína sögu. Samkvæmt gögnum sem vitnað var til árið 2023 bjuggu tæplega 49.000 íslenskir ríkisborgarar erlendis, sem jafngildir um 13,2% af heildaríbúafjölda landsins. Það er gríðarlega hátt hlutfall fyrir svona litla þjóð og bendir til þess að brottflutningur sé ekki bara spurning um veður eða ævintýraþrá. Margir fara líka vegna félagslegs þrýstings, lokunar og þess andrúmslofts að það sé einfaldlega ekki pláss fyrir alla nema á skilmálum þeirra sem ráða. Mér finnst þess vegna mikilvægt að Danir og aðrir utan Íslands fái að heyra meira en bara söguna um „fiskinn og kvótann“. Þeir þurfa að skilja mannlega kostnaðinn. Þeir þurfa að skilja hvað gerist þegar almenningur lifir of lengi við það að örfáir með peninga, tengsl og forréttindi geti mótað umræðuna, atvinnulífið, fjölmiðlana og jafnvel það hvernig kerfin bregðast við. Þá verður samfélagið ekki bara ósanngjarnt. Það verður traumatiserandi fyrir almenning. Umræðan sem hefur verið opnuð er mikilvæg. En það er enn stærri saga þarna undir: saga um samfélagslegt einelti, þöggun, útilokun og hvernig fámenni getur orðið að verkfæri valds. Höfundur er ljósmyndari, nemi í félagsráðgjöf, með bakgrunn í mannréttindum og samfélagsmálum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir Skoðun Jákvæða hliðin á minkamálinu Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Ísland og ESB: Horft af brúnni Þorvaldur Gylfason Skoðun Já til að sjá er tálsýn Guðmundur Edgarsson Skoðun Vextir á villigötum Agnar Tómas Möller Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson Skoðun Tafla á villigötum Gauti Eggertsson Skoðun Viðvörunarljós í evrópsku atvinnulífi Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun Það sem mamma og pabbi kenndu mér Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Hvers vegna erum við enn að reyna að binda hendur fólks? María Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Innan ESB „mun Ísland stjórna fiskveiðum í Norður-Atlantshafi“ Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson skrifar Skoðun Orð skipta máli Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Jákvæða hliðin á minkamálinu Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Viðvörunarljós í evrópsku atvinnulífi Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna erum við enn að reyna að binda hendur fólks? María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir kjósendur eða evrópskir embættismenn? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Tafla á villigötum Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá er tálsýn Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það sem mamma og pabbi kenndu mér Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í – eflum forvarnir í raun! Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ísland og ESB: Horft af brúnni Þorvaldur Gylfason skrifar Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar Skoðun Umræða um dánaraðstoð krefst mannúðar og varfærni Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Vextir á villigötum Agnar Tómas Möller skrifar Skoðun Rangfærslurnar standa enn og ekkert að þeim vikið Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hver lygi skapar skuld við sannleikann Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Herskylduhrakspár Haraldar skekkja raunhæfa sýn á varnarmál Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Sigmar Guðmundsson, Bandaríkin og öryggi Íslands Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson Skoðun
Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson skrifar
Skoðun Byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í – eflum forvarnir í raun! Fanný Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar
Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar
Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason skrifar
Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson Skoðun