Hvert er erindið? Orri Björnsson skrifar 20. apríl 2026 10:01 Þó svo að ég hafi starfað lengi innan Sjálfstæðisflokksins og í stjórnmálum þá er ég nýr oddviti flokksins hér í Hafnarfirði og því ný rödd með nýjar áherslur. Sjálfstæðisflokkurinn er stór og breiður flokkur þar sem ólíkar áherslur innan sjálfstæðisstefnunar rúmast. Sjálfur er ég frjálslyndur hægrimaður. Hvað þýðir það? Það merkir að gildi mín eru frelsi einstaklings, alþjóðleg samvinna og að ráðdeild í rekstri séu mikilvægustu þættirnir þegar kemur að því að reka samfélag. Hlutverk bæjarstjórnar Hlutverk okkar sem veljumst til forystu í bæjarstjórn er að skapa umhverfi sem hjálpar íbúum að blómstra á öllum æviskeiðum lífsins. Það er hlutverk okkar sem erum kjörnir fulltrúar fólksins að móta meginstefnu og ramma um starfsemi bæjarfélagsins. Starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar sjá svo um að framfylgja þeirri stefnu hver í sínu starfi. Frelsið er mikilvægt Mikilvægustu lífsgæði okkar er þó valfrelsið. Frelsi hvers og eins til að velja er hornsteinn lífsgæða okkar allra. Við erum ólík með misjafnar þarfir og gott samfélag tekur mið af ólíkum þörfum. Því miður er það lenska vinstri krata að hafa vit fyrir fólki og skapa þung og einsleit kerfi þar sem allir eiga að fá það sama þó svo að þarfir hvers og eins séu mismunandi, ég hafna slíkri hugsun. Eina leiðin til að koma til móts við fjölbreyttar þarfir fólks er valfrelsi. Einungis þannig náum við utan um þær fjölþættu áskoranir sem að okkar steðja, allt frá leikskólum til öldrunarþjónustu. Kerfin eru mannanna verk og þau eiga að vera í stöðugri þróun og endurskoðun. Valfrelsi er andstæðan við stöðnun, eykur samkeppni og hraðar framförum á öllum sviðum. Frelsið er lykillinn að góðu samfélagi. Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Orri Björnsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Þó svo að ég hafi starfað lengi innan Sjálfstæðisflokksins og í stjórnmálum þá er ég nýr oddviti flokksins hér í Hafnarfirði og því ný rödd með nýjar áherslur. Sjálfstæðisflokkurinn er stór og breiður flokkur þar sem ólíkar áherslur innan sjálfstæðisstefnunar rúmast. Sjálfur er ég frjálslyndur hægrimaður. Hvað þýðir það? Það merkir að gildi mín eru frelsi einstaklings, alþjóðleg samvinna og að ráðdeild í rekstri séu mikilvægustu þættirnir þegar kemur að því að reka samfélag. Hlutverk bæjarstjórnar Hlutverk okkar sem veljumst til forystu í bæjarstjórn er að skapa umhverfi sem hjálpar íbúum að blómstra á öllum æviskeiðum lífsins. Það er hlutverk okkar sem erum kjörnir fulltrúar fólksins að móta meginstefnu og ramma um starfsemi bæjarfélagsins. Starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar sjá svo um að framfylgja þeirri stefnu hver í sínu starfi. Frelsið er mikilvægt Mikilvægustu lífsgæði okkar er þó valfrelsið. Frelsi hvers og eins til að velja er hornsteinn lífsgæða okkar allra. Við erum ólík með misjafnar þarfir og gott samfélag tekur mið af ólíkum þörfum. Því miður er það lenska vinstri krata að hafa vit fyrir fólki og skapa þung og einsleit kerfi þar sem allir eiga að fá það sama þó svo að þarfir hvers og eins séu mismunandi, ég hafna slíkri hugsun. Eina leiðin til að koma til móts við fjölbreyttar þarfir fólks er valfrelsi. Einungis þannig náum við utan um þær fjölþættu áskoranir sem að okkar steðja, allt frá leikskólum til öldrunarþjónustu. Kerfin eru mannanna verk og þau eiga að vera í stöðugri þróun og endurskoðun. Valfrelsi er andstæðan við stöðnun, eykur samkeppni og hraðar framförum á öllum sviðum. Frelsið er lykillinn að góðu samfélagi. Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði.
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar