Frá sigri mannsandans yfir í neyðarástand María Pálsdóttir skrifar 20. apríl 2026 07:00 „Ég held ég muni aldrei upplifa þvílíkan sigur mannsandans eins og byggingu þessa hælis“ sagði Guðmundur Björnson landlæknir við vígsluathöfn Kristneshælis 1. nóvember 1927. Og það var ótrúlegur sigur; konur, sem fundu best hvað berklafaraldurinn lagðist þungt á fólk, hófu söfnun fyrir berklahælinu sem sárvantaði á Norðurland og að endingu safnaðist helmingur kostnaðarins og ríkið lagði fram hinn helminginn. Fjöldi sjálfboðaliða aðstoðaði við byggingarframkvæmdirnar og byggingin reis á undraskömmum tíma og fór hvorki fram úr tímaáætlun né kostnaðaráætlun! Engir kranar, engar vélar, eingöngu talíur, hjólbörur og hendur. Þetta gátum við þá! Það er því sorglegra en tárum taki að sjá hvað nú er að gerast þegar styttist í 100 ára afmæli Kristneshælis. Sjúkrahúsið á Akureyri fékk allan húsakost í fangið 1993 minnir mig og þá var iðnaðarmönnunum sem bjuggu í þorpinu og höfðu séð um allt viðhald hælisins og starfmannahúsanna sem risið höfðu með tímanum, sagt upp. Iðnarðarmenn sjúkrahússins áttu að sinna Kristnesi líka. Miðað við endalausa sparnaðarkröfu ríkisins á sjúkrahúsið var þetta kannski það eina í stöðunni en þetta var upphafið að ósköpunum. Íbúðarhúsin fóru að drabbast niður, ekkert fjármagn né mannskapur í viðhald. Og nú er vandinn orðinn það gígantískur að það eina sem sjúkrahúsið sér í stöðunni er að skella öllum íbúðarhúsunum í lás. Það var íbúum þorpsins tilkynnt nú í vikunni. Ofan á mannekluna á Kristnesi bætist þetta nú við. Eyjafjarðarsveit hefur líst yfir vilja til að stíga inn í vandann og aðstoða þótt þetta sé alfarið á ábyrgð ríkisins og það finnst mér stórmannlegt og til fyrirmyndar og vonandi eitthvað sem ríkið tekur jákvætt í og sem fyrst. En örlög Kristness koma okkur öllum við, endurhæfingin sem þar hefur verið byggð upp á síðustu áratugum er mjög mikilvæg fyrir landshlutann allan og við í L-listanum munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að standa vörð um Kristnes. Höfundur er Hælisstýra á Hælinu setri um sögu berklanna (sem er einmitt rekið í gömlum starfmannahúsum) og í 4. sæti á L-listanum Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
„Ég held ég muni aldrei upplifa þvílíkan sigur mannsandans eins og byggingu þessa hælis“ sagði Guðmundur Björnson landlæknir við vígsluathöfn Kristneshælis 1. nóvember 1927. Og það var ótrúlegur sigur; konur, sem fundu best hvað berklafaraldurinn lagðist þungt á fólk, hófu söfnun fyrir berklahælinu sem sárvantaði á Norðurland og að endingu safnaðist helmingur kostnaðarins og ríkið lagði fram hinn helminginn. Fjöldi sjálfboðaliða aðstoðaði við byggingarframkvæmdirnar og byggingin reis á undraskömmum tíma og fór hvorki fram úr tímaáætlun né kostnaðaráætlun! Engir kranar, engar vélar, eingöngu talíur, hjólbörur og hendur. Þetta gátum við þá! Það er því sorglegra en tárum taki að sjá hvað nú er að gerast þegar styttist í 100 ára afmæli Kristneshælis. Sjúkrahúsið á Akureyri fékk allan húsakost í fangið 1993 minnir mig og þá var iðnaðarmönnunum sem bjuggu í þorpinu og höfðu séð um allt viðhald hælisins og starfmannahúsanna sem risið höfðu með tímanum, sagt upp. Iðnarðarmenn sjúkrahússins áttu að sinna Kristnesi líka. Miðað við endalausa sparnaðarkröfu ríkisins á sjúkrahúsið var þetta kannski það eina í stöðunni en þetta var upphafið að ósköpunum. Íbúðarhúsin fóru að drabbast niður, ekkert fjármagn né mannskapur í viðhald. Og nú er vandinn orðinn það gígantískur að það eina sem sjúkrahúsið sér í stöðunni er að skella öllum íbúðarhúsunum í lás. Það var íbúum þorpsins tilkynnt nú í vikunni. Ofan á mannekluna á Kristnesi bætist þetta nú við. Eyjafjarðarsveit hefur líst yfir vilja til að stíga inn í vandann og aðstoða þótt þetta sé alfarið á ábyrgð ríkisins og það finnst mér stórmannlegt og til fyrirmyndar og vonandi eitthvað sem ríkið tekur jákvætt í og sem fyrst. En örlög Kristness koma okkur öllum við, endurhæfingin sem þar hefur verið byggð upp á síðustu áratugum er mjög mikilvæg fyrir landshlutann allan og við í L-listanum munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að standa vörð um Kristnes. Höfundur er Hælisstýra á Hælinu setri um sögu berklanna (sem er einmitt rekið í gömlum starfmannahúsum) og í 4. sæti á L-listanum
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar