Menntamálin eru í alvarlegum vanda Ragnar Þór Pétursson skrifar 18. apríl 2026 08:32 Þingviku Kennarasambandsins er lokið. Mörg hundruð lykilaðilar úr menntakerfinu eyddu þremur dögum saman til stefnumörkunar fyrir næstu fjögur ár. Þingstörfin sjálf voru heldur tíðindalítil en búast má við meira fjöri á næsta þingi enda millibilsástand í mörgum málaflokkum. Að einu leyti var þingið þó allt annað en lágstemmt. Menntamálaráðherra var boðið að flytja ávarp. Áður en hún lagði af stað sendi hennar hægri hönd ræðuna til RÚV og pantaði frétt um að hún vildi breyta námsmatskerfinu. Þetta er orðinn fastur liður hjá hirð ráðherrans og RÚV virðist þakklátt fyrir þjónustuna. Á blaði tók ræðan rúmar 14 mínútur í flutningi en ráðherrann var í stuði og tvöfaldaði ræðutímann með margvíslegum útúrdúrum og bollaleggingum. Hún talaði niður til erlendra þjóða, sagðist engan áhuga hafa á skóla án aðgreiningar og hæddist að samtökunum Þroskahjálp – svona ásamt ýmsu öðru sem var þess eðlis að þegar ræðunni lauk þurfti fólkið sem ekki var farið út að áminna hvert annað um að klappa kurteislega. Það var mjög undarleg stemmning eftir þessa heimsókn. Erlendir gestir komu í pontu og gerðu sitt besta til að láta eins og þeir hefðu ekki orðið vitni af ósköpunum, RÚV henti fréttinni frá spunameistara ráðherra í örbylgjuofninn og lagði svo á borð fyrir lesendur ... og svo hófst fjörið. Næsta sólarhringinn veltu margir fréttamenn vöngum yfir því hví kennurum væri svona ægilega uppsigað við tölur í stað bókstafa. Á meðan var ekki kjaftur á þinginu að ræða skoðanir ráðherrans á einkunnum. Áhyggjum kennara voru gerð skil daginn eftir í greinargóðri ályktun sem fjallar um hvernig staða menntamála er að verða mjög hættuleg. Um svipað leyti settu svip á samkomuna þau ótíðindi að farsæll skólameistari suður með sjó hefði fengið nóg af sleifarlagi ráðuneytisins og gengið á dyr. Fólk, sem til þekkti, var í losti og óvíst var um viðbrögð kennara og nemenda í skólanum. Smám saman barst staðfesting um að aðrir skólameistarar upplifðu stöðuna svipað. Það varð því frekar þungskýjað yfir þingfulltrúum. Segja má að farið hafi að rigna yfir Kastljósinu. Auðvitað voru áhyggjur fólks núna löngu farnar að ná út fyrir þingið. Fólk talaði við baklandið, sumir við fjölmiðla – og þeir sem eru pólitískt virkir ræddu við sitt heimafólk í stjórnmálunum. Að minnsta kosti er öruggt að helstu flokkar á hinu pólitíska sviði fóru að átta sig á að hér væri eitthvað ekki eins og það ætti að vera. Spunameistarar stjórnarandstöðunnar glöddust enda er enginn sá skaði sem stjórnmálamenn á Íslandi eru ekki tilbúnir að leggja á þjóðina ef það skilar flokk þeirra stuðningi. Í baklandi stjórnarflokkana loguðu spjallborð og símalínur meðan ráðið var ráðum sínum. Viðreisn brást við á svipaðan hátt og þegar ríkisstjórnin stakk Austfirðinga í bakið og bauð kennurum (að vísu allt of seint) til samtals. Það virðist vera meira hugrekki þar innanborðs en til dæmis í Samfylkingunni sem hverfur gjörsamlega í hvert skipti sem stigið er í skítinn. Flokkur fólksins fór aðra leið. Ráðherrann mætti kokhraust í viðtal og sagði að hún væri ekki aðeins elskuleg við kennara heldur elskuðu þeir hana nærri allir – nema nokkrir fýlupokar sem eru á móti árangri barna. Með því kitlar hún enn enn og aftur þau tuttugu prósent landsmanna sem eiga erfitt með að gera upp við sig hvort þeim líkar betur: útlendingaandúð dómsmálaráðherra eða menntahatur barnamálaráðherra. En þótt Viðreisn hafi tekið á móti kennurum einn stjórnmálaflokka og sýnt þar með háttvísi þá var hinn pólitíski spuni þaðan ekki eins kræsilegur. Niðurstaðan var sú að best væri að stilla málinu þannig upp að um vandamál fárra forystumanna í kennarastétt væri að ræða. Næstum allir kennarar vildu láta Ingu bjarga sér. Skólameistarinn sem ákvað að hætta væri hvort eð er í sjónmáli við grafarbakkann (hann er jafnaldri ráðherrans) – og fýlan út í ráðherra væri pólitískt útspil vegna sveitarstjórnarkosninga úr röðum kennara sem bæru engar ástir til stjórnarflokkanna. Þessi spuni er nú ofinn vítt og breytt um alnetið og kemur einna skýrast fram í skrautlegum slúðurdálki Ólafs Arnarssonar á djévaff þar sem hann þreytist ekki á að mála allt sem kemur ríkisstjórninni sem einhverskonar skilaboð frá Mordor. Þar er kennurum nú líkt við LÍÚ sem sýnir hve mjög í takt við tímann áróðursmeistarinn er. Kannski hann leysi einkunnamálin í næsta pistli með því að sýna fram á með snjöllum rökum að bókstafir séu Betamax en tölur VHS. Nú siglum við inn í helgina. Ýmsu nær. Og svo heldur slagurinn áfram. Höfundur er kennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ragnar Þór Pétursson Skóla- og menntamál Mest lesið Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar
Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun