Eitt frægasta íþróttapar Bandaríkjanna tilkynnir um sambandsslit Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. apríl 2026 23:31 Sue Bird og Megan Rapinoe eru hættar saman eftir að hafa verið í sambandi í áratug. Getty/Joe Buglewicz Bandarísku íþróttastjörnurnar Sue Bird og Megan Rapinoe, sem báðar hafa sett skóna upp á hillu, tilkynntu á samfélagsmiðlum í gær að þær væru ekki lengur í sambandi eftir áratug saman. „
Það er í raun engin auðveld eða þægileg leið til að deila þessum fréttum,“ skrifuðu þær í færslu á Instagram. „Eftir mikla umhugsun höfum við tekið þá ákvörðun að slíta sambandi okkar. „Þetta hefur ekki verið auðveld ákvörðun, en það er ákvörðun sem við höfum tekið saman, með mikilli ást, virðingu og umhyggju hvor fyrir annarri.“ Hin 45 ára gamla Bird vann fjóra WNBA-titla á nítján keppnistímabilum sínum í deildinni, alla með Seattle Storm. Hún vann einnig fimm Ólympíugull með bandaríska landsliðinu. Hin fertuga Rapinoe lék með bandaríska kvennalandsliðinu í fótbolta þegar það vann heimsmeistaratitilinn árin 2015 og 2019. Hún vann einnig Ólympíugull með bandaríska liðinu árið 2012. Bird hætti í WNBA eftir tímabilið 2022 og Rapinoe hætti í NWSL-deildinni í lok tímabilsins 2023. „Við höfum deilt heilu lífi síðasta áratuginn, á stórum stundum og í kyrrðinni, og það er eitthvað sem við munum alltaf búa að,“ skrifuðu Bird og Rapinoe. „Við erum svo þakklátar fyrir þetta ótrúlega samfélag sem hefur stutt okkur, tekið okkur opnum örmum og stutt okkur nákvæmlega eins og við erum.“ Bird, sem var tekin inn í frægðarhöll körfuboltans á síðasta ári, er nú framkvæmdastjóri bandaríska kvennalandsliðsins í körfubolta. Bird og Rapinoe höfðu einnig sameiginlega viðskiptahagsmuni, þar á meðal hlaðvarp sem kallast „A Touch More“. „Að byggja upp tengslanet í kringum það hefur verið gríðarleg gleði,“ skrifuðu þær um hlaðvarpið. „Samtölin, hláturinn, tengingin – það þýðir meira en við getum komið í orð. Þó að þessum kafla þar sem við gerum hlaðvarpið saman sé að ljúka, þá er það sem við höfum byggt upp með ykkur ekki á enda.“
Körfubolti Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Sjá meira