Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Atli Ísleifsson skrifar 16. apríl 2026 10:24 Árni Freyr Sigurðsson, Fjölnir Ólafsson og Hjalti Geir Erlendsson. LEX Lögmennirnir Árni Freyr Sigurðsson, Fjölnir Ólafsson og Hjalti Geir Erlendsson gengu til liðs við eigendahóp LEX lögmannsstofu þann 10. apríl síðastliðinn, en allir hafa þeir gegnt stöðu verkefnastjóra hjá stofunni frá árinu 2023.
Í tilkynningu segir að Árni Freyr sé héraðsdómslögmaður með yfirgripsmikla þekkingu og reynslu af ráðgjöf og úrlausn ágreiningsmála, einkum á sviði félagaréttar, samninga- og kröfuréttar, við kaup og sölu fyrirtækja, fjármögnun fyrirtækja, sjóðalöggjafar og verðbréfamarkaðsréttar. „Hann er með lagapróf frá Háskóla Íslands og hefur starfað hjá LEX frá árinu 2018. Árni Freyr er stundakennari við Háskólann í Reykjavík í kaupum og sölu fyrirtækja og hefur verið metinn sem “Leading Associate” af alþjóðlega matsfyrirtækinu Legal 500 og “Rising Star” af matsfyrirtækinu IFLR1000. Fjölnir Ólafsson er Landsréttarlögmaður með lagapróf frá Háskóla Íslands og hefur starfað hjá LEX frá árinu 2018. Fjölnir sérhæfir sig í málflutningi og úrlausn ágreiningsmála og hefur einkum sinnt verkefnum á sviði samninga- og kröfuréttar, samkeppnisréttar, stjórnsýsluréttar og verktaka- og útboðsréttar. Hann var aðstoðarmaður dómara við Landsrétt árið 2020 og er stundakennari í einkamála- og sakamálaréttarfari við Háskóla Íslands. Hjalti Geir Erlendsson er héraðsdómslögmaður með lagapróf frá Háskóla Íslands og LL.M.-gráðu frá Columbia-háskóla í New York. Hann hefur víðtæka reynslu af ráðgjöf og úrlausn ágreiningsmála á sviði stjórnsýsluréttar, eigna-, orku-, auðlinda- og umhverfisréttar og hefur m.a. komið að umfangsmiklum málum í tengslum við innviðauppbyggingu, orkuframleiðslu og auðlindanýtingu. Þá býr hann yfir yfirgripsmikilli þekkingu á Evrópu- og EES-rétti, stjórnskipunarrétti og mannréttindum. Hjalti Geir starfaði áður hjá EFTA-skrifstofunni í Brussel og umboðsmanni Alþingis. Hann sinnir kennslu í námi til löggildingar fasteigna- og skipasala hjá Endurmenntun Háskóla Íslands og situr í stjórn Varðbergs,“ segir í tilkynningunni.
Vistaskipti Lögmennska Mest lesið Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Lífið samstarf Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Sjá meira