Viðskipti innlent

Kvika lækkar hressi­lega í fyrstu við­skiptum

Árni Sæberg skrifar
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion, og Ármann Þorvaldsson, bankastjóri Kviku.
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion, og Ármann Þorvaldsson, bankastjóri Kviku. vísir

Gengi hlutabréfa í Kviku banka lækkaði um 11 prósent í fyrstu viðskiptum dagsins. Tilkynnt var um slit samrunaviðræðna Kviku og Arion banka eftir lokun markaða í gær. Tíðindin virðast hafa minni áhrif á gengi Arion, enda hækkaði gengi bréfa í bankanum um 0,5 prósent í fyrstu viðskiptum.

Stjórnir bankanna tveggja tilkynntu snemma í gærkvöldi að ekkert yrði af fyrirhuguðum samruna þeirra. Í tilkynningum var ástæða viðræðuslitanna rakin til Samkeppniseftirlitsins.

„Í ljósi þeirrar afstöðu Samkeppniseftirlitsins sem fram kom á fundinum telja stjórnir Kviku banka og Arion banka að ekki geti orðið af samruna félaganna. Stjórnir bankanna hafa því fallið frá samrunaáformum sem upplýst var um í tilkynningu til kauphallar þann 6. júlí 2025.“

Hlutabréfaverð Kviku hækkaði um tíu prósent eftir að tilkynnt var um að Arion banki og Íslandsbanki hefðu báðir óskað eftir samrunaviðræðum við bankann og aftur um fjögur prósent þegar tilkynnt var að Kvika hefði samþykkt að ganga til viðræðna við Arion.

Því ætti ekki að koma á óvart að tíðindi gærdagsins hafi komið illa við fjárfesta í Kviku en í fyrstu viðskiptum lækkaði gengi bréfa bankans um 11 prósent.

Gengi Arion banka hækkaði aftur á móti um 0,5 prósent í fyrstu viðskiptum. Vert er að taka fram að fyrir opnun markaða í morgun birti bankinn samantekt á spám tíu greiningaraðila um afkomu bankans á fyrsta ársfjórðungi, sem gæti hafa haft áhrif á gengið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×