Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 15. apríl 2026 20:30 Ingimar Guðmundsson er bæjarstjóraefni D-listans í Hveragerði. Bæjarstjóraefni D-listans í Hveragerði í komandi sveitarstjórnarkosningar verður Ingimar Guðmundsson. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Þar kemur fram að Ingimar sé 32 ára Hvergerðingur sem starfi sem sérfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Ingimar er fæddur og uppalinn í Hveragerði og býr þar í dag ásamt eiginkonu sinni og þremur börnum. Segir í tilkynningunni að Ingimar hafi á undanförnum árum öðlast víðtæka reynslu af málefnum sveitarfélaga, bæði í gegnum starf sitt hjá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga og sem forstöðumaður frístundamála í Hveragerði. Þar hafi hann leitt uppbyggingu sem vakti athygli á landsvísu og var starfsemin meðal annars tilnefnd til íslensku menntaverðlaunanna. Í starfi sínu hafi Ingimar unnið náið með sveitarfélögum, ráðuneytum og fagstofnunum að fjölbreyttum verkefnum sem snúa að þróun þjónustu og stjórnsýslu. Með framboði Ingimars fáist öflug blanda af staðarþekkingu, faglegri reynslu og skýrri sýn á framtíð sveitarfélagsins. „Mér þykir einstaklega vænt um sveitarfélagið og er staðráðinn í því að láta gott af mér leiða,“ er haft eftir Ingimari, „Ég vil bæta gæði þjónustu, efla gagnsæi og tryggja að uppbygging sveitarfélagsins verði í takt við íbúa.“ „D-listinn í Hveragerði leggur áherslu á ábyrgð í ákvarðanatöku. Við viljum tryggja að sérstaða Hveragerðis fái að njóta sín til framtíðar. Við viljum að fjármunum íbúa sé vel varið. Við ætlum að tryggja að fjárfestingar og lántökur taki mið af greiðslugetu sveitarfélagsins. Við leggjum áherslu á lýðheilsu og menntun sem grunn að sterku samfélagi. Við viljum fara af stað með hönnun og uppbyggingu á leikskóla í Kambalandi. Við viljum ábyrga uppbyggingu og við viljum betri lífsgæði,“ segir í tilkynningunni. „Fái D-listinn umboð í komandi sveitarstjórnarkosningum til að starfa í þágu bæjarbúa munum við byggja á skýrri sýn um faglega og ábyrga stjórnun sveitarfélagsins þar sem ákvarðanir eru teknar á grundvelli heildarstefnu, raunhæfra forsendna og skýrrar forgangsröðunar. Veljum ábyrgð, veljum betri lífsgæði og setjum X við D 16 maí.“
Hveragerði Sjálfstæðisflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira