Ósýnileg en ómissandi Eva Hauksdóttir skrifar 15. apríl 2026 11:47 Á hverjum degi eru teknar þúsundir ákvarðana í heilbrigðiskerfinu sem byggja á niðurstöðum rannsókna. Ákvarðanir sem geta skipt sköpum fyrir líf og heilsu fólks. En hversu oft er rætt um þá sem bera ábyrgð á að niðurstöðurnar séu réttar? Í dag, 15. apríl, á alþjóðlegum degi lífeindafræðinga er vert að staldra við og beina sjónum að fagstétt sem flestir hitta aldrei en nánast allir treysta á. Lífeindafræðingar starfa á bak við tjöldin í heilbrigðiskerfinu en starf þeirra er forsenda þess að læknisfræðilegar ákvarðanir séu teknar á traustum grunni. Á rannsóknarstofum heilbrigðiskerfisins fara fram fjölmargar greiningar á hverjum degi, þar á meðal blóð- og þvagrannsóknir, sýklaræktanir, vefjagreiningar og erfða- og sameindarannsóknir. Störf lífeindafræðinga krefjast mikillar sérþekkingar, nákvæmni og ábyrgðar. Smávægileg skekkja í rannsóknarferli getur haft víðtækar afleiðingar fyrir einstaklinga og kerfið í heild. Þess vegna byggir starfið á ströngu gæðaeftirliti, stöðluðum verklagsreglum og stöðugri faglegri þróun. Lífeindafræðingar búa yfir sérþekkingu sem gerir þeim kleift að tryggja gæði og áreiðanleika rannsóknarniðurstaðna og þar með öryggi sjúklinga. Lífeindafræðingar vita af eigin reynslu hversu mikil ábyrgð felst í hverri rannsóknarniðurstöðu. Á bak við hverja mælingu er einstaklingur sem bíður eftir svari og heilbrigðisstarfsfólk sem þarf að geta treyst því að niðurstaðan sé rétt. Starf lífeindafræðinga hefur tekið miklum breytingum yfir árin. Tækniþróun, sjálfvirknivæðing og aukin notkun flókinna greiningaraðferða hafa gjörbreytt vinnuumhverfinu. Kröfum um vinnuhraða, nákvæmni og rekjanleika verður að viðhalda á sama tíma sem verkefnum hefur fjölgað og álag aukist. Ástæðan er ekki síst sú að rannsóknarniðurstöður gegna sífellt stærra hlutverki í læknisfræðilegri ákvarðanatöku. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) byggjast um 70% slíkra ákvarðana á niðurstöðum rannsókna. Sú staðreynd gefur góða mynd af þeirri ábyrgð sem fylgir starfi lífeindafræðinga. Þrátt fyrir þetta er framlag lífeindafræðinga oft lítt sýnilegt í opinberri umræðu. Fagstéttin gleymist gjarnan þegar rætt er um mannafla í heilbrigðiskerfinu. Skortur á lífeindafræðingum er oftar talinn sjálfgefinn en viðurkenndur sem alvarlegt öryggisvandamál. Þetta er þróun sem ekkert okkar ætti að sætta sig við. Að halda upp á alþjóðlegan dag lífeindafræðinga er mikilvægt. Það er ekki nóg að sýna starfi lífeindafræðinga athygli og virðingu einn dag á ári. Raunveruleg virðing fyrir starfinu birtist í því hvernig við forgangsröðum, til dæmis í starfsskilyrðum, öryggi á vinnustað, menntun, endurmenntun og kjörum. Virðingin birtist einnig í því að tryggja að störf lífeindafræðinga séu unnin af menntuðu fagfólki, því öryggi og gæði heilbrigðisþjónustu byggist á þeirri sérþekkingu. Hún birtist í því hvort fagfólk sjái raunverulega framtíð í starfinu sínu en ekki síst í því hvort ungu fólki finnist ástæða til að velja þessa mikilvægu starfsbraut. Heilbrigðisþjónusta sem byggir í vaxandi mæli á rannsóknarniðurstöðum verður ekki sterkari en sú fagþekking og sá mannafli sem stendur þar að baki. Að tryggja að sú stoð sé traust er því lykilatriði fyrir öryggi sjúklinga og gæði heilbrigðisþjónustu. Höfundur er formaður Félags lífeindafræðinga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar