Viðskipti innlent

Bein út­sending: Ís­land 2036: Fjártæknieyjan og fram­tíðin

Árni Sæberg skrifar
Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, er formaður SFF.
Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, er formaður SFF. Anton Brink

Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu, SFF, halda á í dag hinn árlega SFF dag, ársfund samtakanna, klukkan 14:00 í höfuðstöðvum Arion banka. Yfirskrift dagsins í ár er Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin. Beina útsendingu frá fundinum má sjá hér á Vísi.

„Hvernig getur fjármálaþjónusta áfram stutt við hagvöxt og bætt lífskjör næsta áratuginn? Hvaða tækifæri felast í þróun fjártækni og gervigreindar og hvernig geta Íslendingar nýtt þau sem best? Fjallað verður um þessi málefni og fleiri, auk þess sem kynnt verður ný skýrsla, Íslensk fjártækni 2026 – Staða og tækifæri, sem unnin er af Northstack fyrir SFF og Íslandsstofu,“ segir í fréttatilkynningu um fundinn.

Þátttakendur á fundinum séu eftirfarandi:

  • Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra
  • Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra
  • Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika
  • Jón Guðni Ómarsson, formaður SFF og bankastjóri Íslandsbanka
  • Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF
  • Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka
  • Guðmundur Hafsteinsson frumkvöðull
  • Gunnlaugur Jónsson, stjórnarformaður Reykjavík Fintech
  • Helga Valfells, meðeigandi og stofnandi Crowberry Capital
  • Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, stofnandi Northstack
  • Kristín Gunnarsdóttir, forstöðumaður upplýsingamiðlunar Landsbankans
  • Marinó Örn Tryggvason, stofnandi ARMA Advisory

Fundurinn hefst sem áður segir klukkan 14 og hann má sjá í beinni útsendingu í spilaranum hér að neðan:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×