Íbúasamráð í sveitarfélögum Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar 14. apríl 2026 16:32 Kæru lesendur, þessi grein er sérstaklega skrifuð með ykkur í huga, sem eruð í framboði til sveitarstjórna og fjallar um hvað er gagnlegt að hafa í huga varðandi samráð við íbúa. Ef þið hafið hugsjónir og metnað fyrir því að eiga samtal og samráð við íbúa, þá látið þið það að sjálfsögðu koma fram í kynningu fyrir kosningar. Að svo stöddu er þó ekki tímabært að útfæra eða úttala sig um framkvæmd samráðs eða þau málefni sem þar munu falla undir. Þeim spurningum þarf að svara eftir að nýtt kjörtímabil hefst og ný sveitarstjórn hefur stillt saman strengi. Ef er ágreiningur innan sveitarstjórnar um þessar forsendur, veikir það stoðir og árangur samráðsins. Kjarninn í íbúasamráði er mjög einfaldur. Hann snýst um að stjórnendur hugsa með sér að það væri gagnlegt að heyra fleiri sjónarmið um mál, áður en tekin er um það ákvörðun. Markmiðið er þá að öðlast betri yfirsýn og/eða að mæta óskum íbúa og hagaðila um að fá að koma að þessu tiltekna máli. Um þessar mundir má greina ákall um samráð, hvort heldur er í einstökum málefnum eða stefnumótun. Þegar sveitarstjórn ákveður að bjóða að borðinu er hún ekki bara að fá upplýsingar til að undirbyggja sína ákvarðanatöku. Hún er líka að sækja í þekkingarbrunn íbúa, sköpun og frumkvöðlakraft – og síðast en ekki síst að virkja væntumþykjuna gagnvart samfélaginu. Samráð er ekki markmið, heldur nálgun Íbúasamráð er ekki markmið í sjálfu sér, heldur aðferð eða nálgun til að ná öðrum markmiðum. Því er ætlað að undirbyggja ákvarðanir og er mótvægi við það sem stundum gerist, að íbúar geri kröfur og sveitarstjórn fari í vörn. Samráð getur verið valdeflandi fyrir samfélag og það er sveitarstjórnar, sem þess stjórnvalds sem næst stendur íbúum, að bjóða til samstarfs. Fyrsta skrefið í samráði, er alltaf tekið hjá sveitarstjórn, sem ákveður hvort og á hvaða forsendum skal opna samtal við íbúa. Þegar hér er talað um íbúa, er bæði verið að vísa til íbúa sem kjósenda, eða borgara og sem þjónustunotenda. En síðan tengjast ýmsir og ólíkir hagaðilar málum og það þarf að taka tillit til ólíkra sjónarmiða og hagsmuna þegar bjóða skal að borðinu. Skilgreina leikreglur fyrirfram Samkvæmt frumvarpi til nýrra sveitarstjórnarlaga, sem lagt hefur verið fram á alþingi og er nú í þinglegri meðferð, skal leitast við að skilgreina samráðsferla fyrirfram, þar sem m.a. komi fram möguleikar íbúa og þjónustunotenda til að hafa áhrif og að hvaða leyti verði tekið mið af þátttöku þeirra. Þetta þýðir að áður en samráðið hefst þarf að liggja fyrir hvort og að hve miklu leyti, það sem út úr því kemur, verði notað í tengslum við ákvarðanatöku. Á til dæmis að nýta samtalið til að skilgreina valkosti í viðkomandi máli eða á jafnvel að ganga lengra og nýta afrakstur samráðsins til að meta valkostina og jafnvel velja á milli þeirra. Leikreglurnar þurfa semsagt að liggja fyrir áður en lagt er af stað. Sveitarstjórn hefur svo alltaf síðasta orðið, nema hún ákveði að leggja ákveðin mál alfarið í dóm íbúa, með íbúakosningu eða öðru fyrirkomulagi. Þekking og fagmennska Framkvæmd samráðs þarf að vera vönduð og fagleg og slík þekking þarf að verða til innan sveitarfélaga – og ekki hvíla á herðum eins eða örfárra starfsmanna. Þarna standa minni sveitarfélög, með fámenna stjórnsýslu mun verr að vígi en þau stærri. Ef til vill gætu landshlutasamtök sveitarfélaga byggt upp slíka þekkingu hjá sér og aðstoðað minni sveitarfélögin. Samband sveitarfélaga gegnir lykilhlutverki í miðlun þekkingar á landsvísu og benda má á handbók sambandsins um íbúasamráð og þátttöku íbúa. Raunhæf skref Það er mikilvægt að kosningaloforð um íbúasamráð skapi ekki óraunhæfar væntingar og komi í bakið á ykkur. Hér eru nokkrar hugmyndir. Við upphaf kjörtímabils ber sveitarstjórn samkvæmt skipulagslögum að meta hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulag. Sé það niðurstaðan, er hægt að bjóða upp á samtal á fyrstu stigum aðalskipulagsvinnunnar, um framtíðarsýn og áherslur fyrir samfélagið og atvinnu- og umhverfismál. Þannig er gengið skrefinu lengra í samráði, en lögin kveða á um. Að sama skapi er tilvalið að skoða í hvaða málefnum sem fyrir liggja, væri gagnlegt og skynsamlegt að bjóða til samtals. Það verði síðan fléttað inn í stefnumörkun sveitarstjórnar um áherslur á kjörtímabilinu. Þetta má þó ekki vera greypt í stein og þarf stöðugt að endurskoða – sem má t.d. gera í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar ár hvert. Sveitarfélagið hefur nú þegar aðgang að fjölda fólks sem lætur sig málefni þess varða. Það er það allt fólkið sem situr í ráðum og nefndum og starfsmenn í stofnunum sveitarfélagsins. Þarna má segja að sé vannýtt auðlind og sveitarstjórn sem vill leggja áherslu á samráð gæti útfært samtal við þennan hóp sérstaklega – og þá haft þau með í ráðum um hvernig samráðinu verði háttað. Öll dýrin í skóginum vinir? Ekki reikna með að finna alltaf samhljóm eða samstöðu – að öll dýrin í skóginum verði vinir. Og ekki falla í þá gryfju að nota samráð sem leið til að auka vinsældir sveitarstjórnar eða hluta hennar. Það er betra að gera færra og gera það vel og sýna, að þegar þið bjóðið að borðinu, er það gert af heilindum. Það tekur tíma að læra að gera hlutina öðruvísi, bæði innan sveitarfélagsins og hjá íbúum. Það er margt að læra og það reynir á ykkur sem leiðtoga; afstöðu ykkar til valds og hvernig þið nálgist samtal og samvinnu. Samstarf virkjar kraft Í stærra samhengi, þá stendur heimurinn frammi fyrir stórum úrlausnarefnum sem erfitt er að sjá hvernig hægt er að leysa nema með samstarfi. Þegar samfélög taka höndum saman, losnar kraftur úr læðingi. Á tímum vaxandi einstaklingshyggju er raunveruleg hætta á að sundrung og skautun verði banamein samfélagsvitundar. Við getum gert svo mikið betur. Samráð er ekki töfralausn, en það er aðferð sem hlúir að fjöreggi samfélaga, trausti. Og þar getið þið, sem fulltrúar í sveitarstjórnum, haft áhrif sem raunverulega skipta máli. Gangi ykkur vel í að gera vel. Höfundur hefur starfað við íbúasamráð í 25 ár og hefur reynslu af setu í sveitarstjórn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar