Áskrift í sund á verði Netflix Kristinn Jón Ólafsson skrifar 14. apríl 2026 08:48 Sundlaugar Reykjavíkur eru ekki bara sundlaugar. Þær eru eitt mikilvægasta samfélagsrými borgarinnar - staðir þar sem fólk hittist, hreyfir sig, tengist og bætir bæði líkamlega og andlega heilsu sína. Þess vegna skiptir máli að aðgangur að þeim sé raunverulega fyrir alla. Í borgarstjórn í dag verða teknar fyrir stærstu breytingar sem gerðar hafa verið á gjaldskrám sundlauga, Ylstrandarinnar og Fjölskyldu- og húsdýragarðsins frá upphafi. Þetta eru breytingar sem munu gera þjónustu borgarinnar aðgengilegri, sanngjarnari og ódýrari fyrir fjölskyldur og reglulega notendur. Frítt fyrir öll reykvísk börn í sund og Ylströnd Ein stærsta breytingin er sú að öll reykvísk ungmenni 17 ára og yngri fá frítt í sund og á Ylströndina. Hingað til hafa 16 og 17 ára unglingar þurft að greiða fyrir sundferðir sínar - en nú er verið að afnema þann þröskuld. Það er fjárfesting í lýðheilsu ungs fólks og skýr skilaboð um að Reykjavík eigi að vera borg sem hvetur börn og ungmenni til hreyfingar, útivistar og þátttöku. Á sama tíma lækkar árskort fullorðna í sundlaugar Reykjavíkur um 29%, úr 48 þús. kr. niður í 34 þús. kr. - sem gerir það að hagstæðasta árskortinu í sund á öllu höfuðborgarsvæðinu. Fyrir fjölskyldu með tvo foreldra þýðir þetta a.m.k. 28 þús. kr. í sparnað á ári. Lækkanirnar ná einnig til annarrar mikilvægrar afþreyingar. Árskort barna í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn lækkar um heil 77%, úr 17.600 kr. niður í 4 þús. kr., og árskort fullorðinna lækkar um 60%. Á Ylströndina lækkar árskortið um 21%. Áskrift að borginni Í fyrsta sinn verður hægt að fá áskrift í þjónustur borgarinnar - áskrift í sund verður á 2.833 kr. á mánuði fyrir aðgang að átta sundlaugum borgarinnar. Áskrift verður einnig í boði fyrir 1.500 kr. á mánuði á Ylströndina og aðeins 333 kr. fyrir börn og 583 kr. fyrir fullorðna í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Þetta er hluti af nýrri nálgun þar sem við kollvörpum gamla viðskiptamódelinu: stök gjöld hækka hóflega og árskort lækka verulega ásamt því að í fyrsta sinn verður hægt að fá áskrift að þessum þjónustum. Markmiðið er einfalt - að gera þjónustur borgarinnar aðgengilegri og hagstæðari fyrir þá sem nýta þjónustuna reglulega. Ef þú ferð oftar en einu sinni í viku í sund, einu sinni í mánuði á Ylströndina eða oftar en tvisvar á ári í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, þá borgar sig að vera í áskrift. Þannig einföldum við gjaldskrárnar, gerum þær skiljanlegri og hjálpum fjölskyldum að velja það sem hentar þeim best. Vilja íbúar Reykjavíkur niðurgreiða sundferðir ferðamanna? Þessi breyting er líka sanngjörn. Raunkostnaður við eina sundlaugarferð er um 2.150 kr. Í dag greiða óreglulegir gestir og ferðamenn aðeins 1.430 kr. fyrir staka heimsókn, sem þýðir að skattgreiðendur í Reykjavík niðurgreiða hverja slíka ferð um meira en 700 krónur. Með því að færa stök gjöld í átt að raunkostnaði á þessu og næsta kjörtímabili skapast réttlátara kerfi þar sem þeir sem nýta þjónustuna reglulega fá bestu kjörin, en allir óreglulegir gestir greiða sanngjarnt verð. Um leið stuðlar þetta að sjálfbærari rekstri. Með sterkari og sanngjarnari tekjugrunni getum við tryggt meira fjármagn í viðhald sundlauganna, aukið svigrúm til umbóta og lengt opnunartíma þar sem eftirspurnin er mest. Við Píratar viljum ganga enn lengra og leyfa íbúum sjálfum að hafa áhrif á opnunartíma sundlauga og Ylstrandar með borgarakönnun - því þjónustan á að taka mið af þörfum þeirra sem nota hana. Með aðgang að borginni í vasanum Þessar breytingar marka líka upphaf nýrrar stafrænnar þjónustu. Reykjavík er að innleiða í fyrsta sinn stafrænt borgarkort - eitt aðgangskort fyrir fjölbreytta þjónustu borgarinnar. Með því verður hægt að vera með aðgang að átta sundlaugum, Ylströndinni, Fjölskyldu- og húsdýragarðinum og söfnum borgarinnar í snjallveskinu - í símanum og úrinu. Einnig er unnið að innleiðingu sömu lausnar hjá Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins fyrir Reykjavík City Card. Reykjavík færist bókstaflega í vasa íbúa og ferðamanna. En þetta er aðeins byrjunin Píratar vilja halda þessari þróun áfram á næsta kjörtímabili með því að innleiða sérstakt ungmennakort fyrir 18-24 ára sem veitir afslátt í sund, Ylströnd, söfn og jafnvel Strætó. Við viljum einnig bjóða tímabilskort á sérkjörum fyrir foreldra í fæðingarorlofi og fyrir fólk í endurhæfingu, svo fleiri geti nýtt sér þjónustu borgarinnar á mikilvægum tímabilum í lífi sínu sem styrkir heilsu og lífsgæði. Markmiðið er skýrt: að halda áfram að lækka þröskulda fyrir fjölskyldur, ungt fólk og þau sem hafa minna á milli handanna. Vegna þess að lýðheilsa, menning og samvera eiga ekki að vera forréttindi - heldur sjálfsagður hlutur í að besta borgina fyrir okkur öll og þau sem þurfa mest á því að halda. Höfundur er oddviti Pírata í Reykjavík og stjórnarformaður Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kristinn Jón Ólafsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Píratar Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar