Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Atli Ísleifsson skrifar 14. apríl 2026 07:34 Þorsteinn R. Hermannsson. Þorsteinn R. Hermannsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna. Hann tekur við starfinu af Davíð Þorlákssyni.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Betri samgöngum. Þar segir að stjórn Betri samgangna hafi samþykkt ráðninguna á fundi sínum þann 7. apríl síðastliðnum og hafi verið gengið frá ráðningu hans fyrir helgi. Alls bárust níu umsóknir um starfið. Starf framkvæmdstjóra var auglýst laust til umsóknar í byrjun mars þegar Davíð Þorláksson lét af störfum til að taka við sem framkvæmdastjóri hjá Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins, nýju félagi sem tekur yfir rekstur og þjónustustýringu Strætó og mun síðar sjá um rekstur Borgarlínu. „Eftir vandað ferli undir stjórn VinnVinn var niðurstaða stjórnar að ráða Þorstein í starfið en hann kom best út í samanburði við aðra umsækjendur. Við bjóðum Þorstein velkominn til starfa hjá Betri samgöngum í þessu nýja hlutverki og við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við hann og annað starfsfólk fyrirtækisins“, er haft eftir Eyjólfi Árna Rafnssyni, stjórnarformanni Betri samgangna. Um Þorstein segir að hann sé með meistarapróf í byggingarverkfræði með sérhæfingu í samgönguverkfræði frá University of Washington og lauk BSc-námi í umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands. „Hann hefur starfað hjá Betri samgöngum frá árinu 2021 en var þar áður samgöngustjóri Reykjavíkurborgar frá 2016 til 2021. Þorsteinn hefur víðtæka reynslu sem stjórnandi og samgönguverkfræðingur og starfaði um árabil hjá verkfræðistofunni Mannviti , meðal annars sem fagstjóri samgangna og sem sviðsstjóri umferðar- og skipulagssviðs. Þá var Þorsteinn verkfræðingur samgönguáætlunar í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu árin 2010 til 2012.“
Vistaskipti Samgöngur Borgarlína Tengdar fréttir Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Davíð Þorláksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. úr hópi 23 umsækjenda. Hann mun hefja störf á næstu dögum. Um er að ræða nýtt félag sem tekur yfir rekstur leiðakerfis Strætó. 23. janúar 2026 10:00 Mest lesið „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Atvinnulíf Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira
Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Davíð Þorláksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. úr hópi 23 umsækjenda. Hann mun hefja störf á næstu dögum. Um er að ræða nýtt félag sem tekur yfir rekstur leiðakerfis Strætó. 23. janúar 2026 10:00