Hákon lagði upp í öruggum sigri Valur Páll Eiríksson skrifar 12. apríl 2026 17:12 Hákon lagði upp mark í góðum sigri. Jean Catuffe/Getty Images Lille fór upp í þriðja sæti frönsku úrvalsdeildarinnar eftir 4-0 útisigur á Toulouse síðdegis. Hákon Arnar Haraldsson lagði sitt að mörkum til sigursins.
Hákon var að venju í byrjunarliði Lille og hann lagði upp fyrsta mark leiksins fyrir belgíska bakvörðinn Thomas Meunier um miðjan fyrri hálfleik. Staðan var þökk sé því marki 1-0 í hléi. Þrjár mínútur voru búnar af síðari hálfleik þegar bandaríski varnarmaðurinn Mark McKenzie fékk að líta beint rautt spjald fyrir brot á Matías Fernández-Pardo. Lilleliðar voru snarir að nýta sér liðsmuninn en tveimur mínútum eftir brottvikninguna tvöfaldaði hinn bakvörðurinn, Romain Perraud, muninn með marki beint úr aukaspyru. Fimm mínútum eftir það, á 55. mínútu, skoraði áðurnefndur Fernández-Pardo þriðja markið. Gamlinginn Olivier Giroud skoraði af vítapunktinum á 88. mínútu og innsiglaði 4-0 sigur Lille. Þökk sé sigrinum er Lille með 53 stig í þriðja sæti deildarinnar, sem er jafnframt Meistaradeildarsæti. Sex stig eru upp í Lens í öðru sæti en Marseille er aðeins stigi á eftir Lille í því fjórða, Rennes með 50 stig í fimmta sæti, Mónakó með 49 stig í því sjötta og Lyon 48 í sjöunda sætinu í þéttri Meistaradeildarbaráttunni.
Franski boltinn Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Sjá meira