Hófí Dóra missti gleðina og alla trú á kerfinu Sindri Sverrisson skrifar 12. apríl 2026 14:29 Hófí Dóra Friðgeirsdóttir er ekki af baki dottinn þrátt fyrir vonbrigðin miklu í byrjun árs. Getty/Jens Büttner Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir, fremsta skíðakona landsins, hélt að hún myndi aldrei aftur finna gleðina sem fylgir því að skíða, eftir ákvörðun Skíðasambands Íslands um að hún færi ekki á Vetrarólympíuleikana í febrúar. Nú líður henni betur og er engan veginn hætt.
Hófí Dóra, eins og hún er kölluð, segist hafa leitað til íþróttasálfræðings í kjölfar ákvörðunar SKÍ, eftir að hafa „misst alla trú á kerfinu“ og stundað sínar æfingar „með kökkinn í hálsinum“. Hún hafði undirbúið sig fyrir leikana í fjögur ár og var efst Íslendinga á stigalista alþjóða skíðasambandsins þegar kom að úthlutun ÓL-sæta. Hún hafði hins vegar brotið bein í sköflungi á æfingu í byrjun desember og þó að Hófí Dóra hafi sjálf talið að hún myndi ná sér í tæka tíð til að keppa á Vetrarólympíuleikunum þá tók stjórn Skíðasambands Íslands þá ákvörðun að senda frekar Elínu Elmarsdóttur Van Pelt í hennar stað. Hófí Dóra gagnrýndi þá þegar vinnubrögð SKÍ harðlega og kvaðst afar svekkt og sár en hefur nú unnið sig út úr sorginni. „Þegar í ljós kom að Ísland fengi úthlutað aukasæti á Vetrarólympíuleikana í febrúar var ég úti á Ítalíu að sinna mínu return to snow prógrammi. Aukasætið kemur til vegna árangurs míns í aðdraganda leikanna og þeim stigum sem ég hafði safnað síðastliðna 1,5 árið. Ég var efst Íslendinga á ÓL-lista sem valið er eftir og jafnframt eina íslenska konan með stig á listanum. Á þessum tímapunkti hafði mér gengið vel að skíða og ég sá fyrir mér að keppa á öðrum mótum í staðinn fyrir þátttöku á ÓL. Á sama tíma var ég að reyna átta mig á stöðunni og þeim vinnubrögðum sem höfðu viðhafst við valið. Ég var ennþá með drifkraft og trú á sjálfri mér og sú eina sem vissi hvernig mér leið í líkamanum,“ skrifar Hófí Dóra í pistli á samfélagsmiðlum í dag. View this post on Instagram A post shared by HOFI DORA (@hofidora) „Þegar aukasætinu var síðan úthlutað til annars íþróttamanns, án þess að athuga stöðuna á mér, missti ég alla trú á kerfinu. Ég missti trú á mínu eigin sérsambandi og gleðina sem fylgdi því að keppa. Ég hélt áfram að æfa en var oft með kökkinn í hálsinum og hélt á tímapunkti að mér myndi aldrei finnast gaman á skíðum aftur,“ skrifar Hófí Dóra. „Þið munuð sjá meira af mér í framtíðinni“ Hún er þó ekki af baki dottinn og segist ekki ætla að láta málið eyðileggja fyrir sér. Fólk muni fá að sjá meira af henni í framtíðinni. Vinna með íþróttasálfræðingi á Íslandi hafi hjálpað til. „Þetta er í fyrsta sinn í mörg ár sem ég dvel allan mars mánuð á Íslandi og ég var greinilega heppin því veturinn kom seint til landsins og hann kom með hvelli. Á meðan ég sinnti sálfræðimeðferð gat ég því skíðað í Bláfjöllum, mínu heimasvæði, og það var ákveðin þerapía útaf fyrir sig. Að því sögðu þá líður mér betur í dag eftir erfiða mánuði. Ég veit að skíði er eitt það skemmtilegasta sem ég geri og mun ekki láta eyðileggja það fyrir mér. Ég er ekki hætt, á mikið eftir að gefa og sýna, þið munuð sjá meira af mér í framtíðinni.“
Skíðaíþróttir Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Fleiri fréttir Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki PSG - Barcelona | Tvö af bestu liðum Evrópu mætast Liverpool - Villarreal | Áfram á sigurbraut í Meistaradeildinni? Valur - Haukar | Hörkuslagur á Hlíðarenda „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Sjá meira