Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Freyja Þórisdóttir skrifar 12. apríl 2026 14:39 Justin Bieber aflýsti Justice-heimstónleikaferð sinni vegna heilsufarsvandamála árið 2022 en tónleikarnir í gær voru þeir stærstu sem hann hefur komið fram á í rúm fjögur ár. Getty Tónlistarmaðurinn og Íslandsvinurinn Justin Bieber sneri aftur á stóra sviðið í gærkvöldi. Hann steig þá á stokk á bandarísku tónlistarhátíðinni Coachella sem eitt af aðalnúmerum hennar. Hinn 32 ára gamli söngvari varði stórum hluta tónleikanna sitjandi fyrir framan fartölvu og syngjandi með YouTube-tónlistarmyndböndum við eldri slagara sína, eins og „Baby“ og „Never Say Never“.
Justin Bieber greindist með Ramsey Hunt-heilkennið árið 2022 en það lýsti sér hjá honum þannig að hluti andlits hans lamaðist og hefur hann sagt frá því í viðtölum að hann hafi ekki verið fær um að brosa í marga mánuði. Tónlistarmaðurinn, sem kemur frá Kanada, gaf út óvæntu plötuna Swag í júlí 2025 og kom seinna fram á Grammy-verðlaunahátíðinni í febrúar. Hann aflýsti heimstónleikaferð sinni eftir að hafa tilkynnt aðdáendum sínum að hann þjáðist af heilkenninu en tónleikar hans í gærkvöldi eru þeir stærstu sem hann hefur komið fram á í fjögur ár. Þetta er meðal þess sem breski fjölmiðillinn BBC birti í umfjöllun sinni um tónleikana í gær. Justin var tólf ára gamall þegar umboðsmaðurinn Scooter Braun rakst fyrir tilviljun á myndbönd sem móðir hans hafði birt á YouTube-miðlinum af honum syngja. Þau vöktu athygli Braun þrátt fyrir að hafa upphaflega verið hugsuð til þess eins að deila söngnum með fjölskyldunni. Á tónleikunum í gær spilaði Justin nokkur af heimatilbúnu myndböndunum sem vöktu athygli tónlistarbransans á honum, sýndi þau á stórum skjá og virtist eiga í samskiptum við athugasemdir í beinni á YouTube-streymi tónleikanna. Hann hóf tónleikana einn á annars tómu sviði og flutti lög af plötum sínum Swag og Swag II frá 2025 áður en hann sagði áhorfendum að hann vildi fara með þá „í ferðalag“ og kafaði ofan í safn sitt.
Tónlist Bandaríkin Tengdar fréttir Bieber fékk sér smók í Skagafirði Nýtt tónlistarmyndband kanadísku poppstjörnunnar Justins Bieber er tekið upp hér á landi, sér í lagi í Fljótunum í Skagafirði. 15. ágúst 2025 11:34 Justin Bieber skaut nýtt myndband á Íslandi Justin Bieber var hér á landi í síðustu viku og hélt tvenna tónleika í Kórnum í Kópavoginum. 15. september 2016 10:06 Mest lesið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Bíó og sjónvarp Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Fleiri fréttir Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Sjá meira
Bieber fékk sér smók í Skagafirði Nýtt tónlistarmyndband kanadísku poppstjörnunnar Justins Bieber er tekið upp hér á landi, sér í lagi í Fljótunum í Skagafirði. 15. ágúst 2025 11:34
Justin Bieber skaut nýtt myndband á Íslandi Justin Bieber var hér á landi í síðustu viku og hélt tvenna tónleika í Kórnum í Kópavoginum. 15. september 2016 10:06