Röddin - Íslensku hljóðvarps- og hlaðvarpsverðlaunin Gunnar Salvarsson skrifar 11. apríl 2026 06:32 Röddin – Íslensku hljóðvarps- og hlaðvarpsverðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í gærkvöldi. Þetta var lágstemmd athöfn án alls íburðar, en sviðsmyndin tengd hundrað ára sögu útvarps á Íslandi. Fyrsta formlega útvarpssendingin fór fram í mars 1926. Tilnefnt var í sjö flokka, fjóra fyrir hljóðvarp og þrjá fyrir hlaðvarp, auk heiðursverðlauna sem komu í hlut Gerðar G. Bjarklind, þular og dagskrárgerðarmanns á RÚV um áratugaskeið. Það fór einkar vel á því. Í flokki tónlistarþátta í hljóðvarpi hlaut þáttur Ásgeirs Eyþórssonar, Bubbi og böndin, verðlaun ársins. Í flokki dægurmála- og viðtalsþátta komu verðlaunin í hlut Heimis Karlssonar og samstarfsfólks hans í morgunþætti Bylgjunnar, Í bítið. Sprengjan sem sprakk, í umsjón Guðrúnar Hálfdánardóttur, fékk verðlaun í flokki heimildaþátta og í flokknum dagskrárgerð ársins varð fyrir valinu þáttur Ólafs Páls Gunnarssonar, Rokkland á Rás 2. Fyrir hlaðvörp voru veitt þrenn verðlaun. Sölvi Tryggvason fékk verðlaunin í flokki dægurmála- og viðtalsþátta, í flokki heimildaþátta stóð uppi sem sigurvegari Gabríela Bryndís Ernudóttir fyrir Biskupsmálið og verðlaun í flokknum nýliði ársins komu í hlut Ólafar Skaftadóttur og Kristínar Gunnarsdóttur fyrir hlaðvarpið Komið gott. Jæja, best að láta af þessum tilbúningi. Engin slík hátíð fór fram í gærkvöldi og hefur reyndar aldrei farið fram. Af skapandi greinum er dagskrárgerð fyrir hljóðvarp og hlaðvarp sárlega undanskilin í þeirri verðlaunaflóru sem er vel þekkt. Enginn veit í raun hvers vegna þessir miðlar, jafn áhrifamiklir og vinsælir og þeir eru, fá enga vegtyllu eða sýnilega upphefð líkt og aðrar skapandi greinar. Það væri of langt mál í stuttum pistli að tíunda allar þær verðlaunaafhendingar sem haldnar eru árlega þar sem verk höfunda eru sett undir smásjá þar til bærra dómnefnda og tilkynnt, oft með mikilli viðhöfn og jafnvel talsverðu glysi, hvaða höfundar hafa skarað fram úr á ýmsum sviðum. Íslensku hljóðvarps- og hlaðvarpsverðlaunin þyrftu hvorki lúðraþyt né söng, því miðillinn er í sjálfu sér einfaldur: hljóðnemi, rödd og gott efni. Rétt er að taka fram að fréttatengt efni í hljóðvarpi er metið til viðurkenningar í Íslensku blaðamannaverðlaununum sem haldin eru á vegum Blaðamannafélags Íslands. Annað efni í þessum miðli – og nýja hlaðvarpsmiðlinum – liggur hins vegar óbætt hjá garði og fær ekki þá hvatningu eða viðurkenningu sem því ber. Af hefðbundnum fjölmiðlum er útvarp líklega sá sem nær til flestra jarðarbúa. Í fátækum ríkjum er hann sá mikilvægasti, jafnvel sá eini sem nær til allra. Þrátt fyrir ýmiss konar nýja miðlun hefur útvarpið haldið velli gegnum áratugina og stendur sterkt í íslenskri fjölmiðlaflóru, nú þegar rétt hundrað ár eru liðin frá fyrstu útvarpssendingunni frá Loftskeytastöðinni. Lengi vel áttum við Íslendingar aðeins eitt útvarp og eina rás, Ríkisútvarpið, en þegar ég var að alast upp gátum við líka, gegnum viðtækin, hlustað á Radio Luxemburg, Kanann og aðrar poppstöðvar á stuttbylgju. Rekstur frjálsra útvarpsstöðva var síðan heimilaður 1985. Þar með var rofin einokun RÚV og grunnur lagður að stöðvum eins og Bylgjunni. K100, FM957 og tugum annarra. Er ekki löngu tímabært að koma á árlegum verðlaunum fyrir það besta sem gert er á Íslandi á sviði hljóðvarps og hlaðvarps? Höfundur er fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hlaðvörp Gunnar Salvarsson Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar