Gagnsæi í ákvarðanatöku Heiðrún Kristmundsdóttir skrifar 10. apríl 2026 09:16 Í smærri samfélögum vill það oft vera þannig að allir þekkja alla, eða kunna deili hver á öðrum. Hverra manna þú ert, eða hvaðan þú kemur. Þetta getur verið ákveðið auðkenni og fylgt samfélaginu þrátt fyrir vöxt þess. Það fylgir þessu öryggi. Og sjálf ólst ég upp í þannig samfélagi. En það hefur líka sína ókosti að þekkja alla og allir þekki þig. Íbúar Árborgar fara ekki varhluta af vextinum sem hér hefur átt sér stað. Ég og mín fjölskylda erum ein af fjölmörgum sem standa að baki þessum mikla vexti. Og um leið er ég ekki svo viss um að Árborg sé eins lítið og náið samfélag og áður, kannski sérstaklega á Selfossi. Það þýðir ekki að það sé slæmt, en það er hluti af vaxtarverkjum Árborgar að takast á við að verða stærra og flóknara samfélag, fjölbreyttara samfélag. Í slíku umhverfi eykst mikilvægi gagnsæis, skýrrar stjórnsýslu og opins samtals. Frímínútur Í allri ákvarðanatöku þarf að horfa til ólíkra sjónarmiða og tryggja að horft sé til hagsmuna samfélagsins alls. Þessu má líkja við þegar kosið var í lið í frímínútum. Oftast voru þau hæfustu valin fyrst, en stundum urðu vinirnir frekar fyrir valinu. Því stundum var til lengri tíma litið auðveldara að særa ekki vinskapinn heldur en að ná í betri úrslit fyrir liðið. Þetta er ein leið til að velja í lið, að taka sín tengsl fram yfir hagsmuni liðsins, en þá er verið að vinna gegn megin markmiðinu, að gera heildina sem besta. Þetta má heimfæra yfir á stjórnsýslu. Viðreisn stendur fyrir heiðarleika, skýrleika og gagnsæi þar sem ákvarðanir eru teknar á grundvelli skýrra reglna og á faglegum forsendum, þar sem jafnræði og almannahagsmunir eru í forgrunni. Það á að vera ljóst hvaða sjónarmið liggja að baki ákvörðunum og við hvaða gögn er stuðst áður en niðurstaða er fengin. Fyrir öll börn Ég vil búa í barnvænu samfélagi, þar sem tækifæri barna til þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi eru jöfn og þau komast örugglega á milli staða. Þetta er eitt af því sem laðaði okkur að sveitarfélaginu og varð til þess að við settumst að á Selfossi. Þetta er íþróttabær og með metnað sem slíkur. Ég get þakkað fjölskyldu minni og samfélaginu sem ég ólst upp í þátttöku minni í íþróttastarfi, sem ég tek ennþá þátt í, en íþróttirnar hafa einnig mótað hver ég er í dag. Meðal grunnstefnumála okkar í Viðreisn er heilsuefling, lýðheilsa og jöfn tækifæri allra barna. Þetta er mikilvægt, ekki bara til að gefa börnum færi á að kynnast fjölbreyttum íþróttum og að læra að vinna í hóp, heldur er þetta gríðarstórt forvarnarmál. Með því að stuðla að þátttöku barna í íþróttum og tómstundum er dregið úr kostnaði samfélagsins síðar, hvort sem litið er til heilbrigðiskerfisins, félagsþjónustunnar eða annarra úrræða. Þroski og þor Fyrir Viðreisn er þetta einfalt. Hvert barn í Árborg á að hafa tækifæri til þátttöku, til að þroskast og til að tilheyra íþrótta- og tómstundastarfi, sama hvaðan það kemur eða hvert bakland þess er. Á þessu sviði hefur margt unnist en um leið tækifæri til að gera enn betur. Heiðarleika og gagnsæi má kalla innri áttavita okkar sem skipum lista Viðreisnar í Árborg, lista sem ég leiði með stolti. Við viljum vinna að auknu gagnsæi í allri ákvarðanatöku og við viljum tryggja aðgengi allra barna að tómstundastarfi og við setjum okkur markmið til að ná árangri. Höfundur er oddviti Viðreisnar í Árborg. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar