Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Jakob Bjarnar skrifar 9. apríl 2026 10:35 Helgu Völu barst óvæntur liðsauki í umræðunni um námslán. Einar G. Harðarson furðar sig á gagnrýni hagfræðingsins Konráðs S. Guðjónssonar sem sagði um lán á tombólukjörum að ræða. vísir/vilhelm/aðsend Einar G. Harðarson, sem er fyrrverandi stjórnarmaður í Lánasjóði íslenskra námsmanna (LÍN), furðar sig á umræðu sem hefur geysað að undanförnu um námslán á Íslandi. Einar segir námslán fjárfestingu, ekki gjöf til handa námsmönnum. „
Menntun er ekki kostnaður heldur fjárfesting. Þjóðir sem hafa náð bestum árangri efnahagslega eru ekki þær sem spara í menntakerfinu, heldur þær sem byggja markvisst upp þekkingu, hæfni og mannauð,“ segir Einar í grein sem hann birti á Vísi undir yfirskriftinni „Menntun Helgu Völu er fjárfesting – ekki gjöf“. Umræðan með ólíkindum Tilefni skrifa Einars eru skrif Konráðs S. Guðjónssonar, fyrrum efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar sem þakkaði fyrir námslánin, með virtum, sagði þær gjöf en ekki gjald enda lán sem veitt væri á tombólukjörum. Konráð sagði að hann myndi aldrei kvarta undan námslánum – eins og lögmaðurinn Helga Vala Helgadóttir hafði gert - og segir grein Einars byggja á misskilningi. Einar segir þessa umræðu með ólíkindum. „Ég er ekki aðdáandi Helgu Völu Helgadóttur, þvert á móti, en hún hefur engu að síður rétt fyrir sér í þessu lykilatriði: námslánakerfið er orðið mörgum námsmönnum þung byrði og er samfélagi okkar til skammar. Námslán eru ekki gjöf. Þau eru fjárfesting. Að halda öðru fram er skammsýni.“ Einar segir að auki það vekja sérstaka furðu að hagfræðingur haldi því fram að verið sé að „gefa“ námsmönnum fé. Það bendi til alvarlegs misskilnings á eðli menntunar í hagkerfi. Menntun sé ein arðbærasta fjárfesting sem samfélag getur ráðist í. Og þetta ætti hagfræðin að kenna. Menntun lykill að farsæld samfélaga „Einstaklingur sem menntar sig eykur framleiðni sína, skilar hærri tekjum og greiðir meiri skatta til samfélagsins til lengri tíma. Samfélagið fær þannig margfalt til baka það sem það leggur í menntun. Að leggja þungar skuldir á námsmenn er því ekki aðeins ósanngjarnt heldur einnig óskynsamlegt út frá einföldum hagfræðilegum rökum. Skuldsettir námsmenn þýðir veikari framtíð,“ segir Einar meðal annars. Hann segir kjarna málsins einfaldan. Ef Ísland ætlar að halda stöðu sinni meðal fremstu þjóða þarf að hætta að líta á menntun sem útgjaldalið sem þurfi að halda niðri. „Í staðinn þarf að líta á hana sem lykil fjárfestingu í framtíð þjóðarinnar. Spurningin er því ekki hvort við höfum efni á að styðja betur við námsmenn. Spurningin er hvort við höfum efni á því að gera það ekki.“ Konráð segir í færslu á Facebook að viðbrögð Einars virðist byggja á furðulegum misskilningi. Hann hafi aldrei sagt að námslán væri bókstaflega „gjöf“. „Það er hins vegar einföld staðreynd að þau eru veitt á tombólukjörum sem eru umtalsvert betri en bjóðast á markaði. Þannig var kerfið hannað, en hefur breyst til batnaðar með meiri beinum styrk. Persónulega styð ég opinberan stuðning til náms og jöfn tækifæri til framgangs á eigin verðleikum, enda er það jú fjárfesting.“ Fréttin var uppfærð með viðbrögðum Konráðs.
Námslán Íslenska krónan Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira