„Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Lovísa Arnardóttir og Margrét Helga Erlingsdóttir skrifa 8. apríl 2026 23:00 Arnar Sigurðsson eigandi Sante áfengisverslunar. Vísir/Vilhelm Forsvarsmaður áfengisnetverslunarinnar Smáríkisins hefur verið sakfelldur fyrir að hafa selt hvítvínsbelju og er talinn hafa brotið gegn einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis á Íslandi. Eigandi annarar netverslunar segir dóminn fráleitan.
Um er að ræða fyrsta dóminn sem fellur í máli er varðar lögmæti fyrirkomulagsins sem fjöldi netverslana hefur viðhaft við sölu á áfengi hér á landi á síðastliðnum árum. Arnar Sigurðsson, eigandi Santé, segir allan málatilbúnaðinn fráleitan og dóminn líka. Rætt var við Arnar í kvöldfréttum Sýnar í kvöld. „Við einfaldlega búum við svokallaðan staðfestingarrétt EES-samningsins sem gerir það að verkum að öllum er frjálst að stunda viðskipti yfir landmæri,“ segir hann og að það sé rétt hægt að ímynda sér hvernig þetta virkar í Evrópu þar sem ekki megi hindra frjálst flæði fjármagns eða fólks yfir landmærin. „Það að Ísland sé örlítið lengra frá skiptir náttúrulega ekki máli,“ segir hann. Arnar segir málinu verða áfrýjað til æðra dómstigs og dómurinn hafi því engin áhrif til að byrja með. Hann segir reksturinn halda áfram eins og áður og í fyrramálið sé hann að taka við nýjum vörum. „Það er ekkert sem hefur breyst.“ Hann segir auk þess að frá því að málið var höfðað og þar til í dag hafi komið álit frá Esa, eftirlitsstofnun EFTA, þar sem gerðar eru athugasemdir við núverandi fyrirkomulag áfengissölu hjá hinu opinbera. „Sér í lagi það að annars er búið að einkavæða stærstu áfengisverslun landsins, sem er í fríhöfninni í Keflavík, og ESA eðlilega spyr: Hvað stendur eftir af þessu meinta einkaleyfi ÁTRV?“ segir Arnar og að ESA bendi réttilega á að Heinemenn, sem rekur verslunina, sé einkaaðili og ekki hið opinbera. Þá hafi verið útdeilt áfengisverslanaleyfum til brugghúsa þar sem lítil brugghús mega selja á framleiðslustað sína framleiðslu og ESA spyrji því sömuleiðis hvað standi eftir af einkaleyfinu þegar svo sé. „Svarið er auðvitað bara: Það er ekki neitt,“ segir Arnar. Arnar segir stjórnvöld þurfa að girða sig í brók og klára þetta mál. Það sé frumvarp fyrir þingi um að leyfa netverslun með áfengi og það sé leitun að öðru eins fyrirkomulagi þar sem íslenskum almenningi er heimilt að versla áfengi af hvaða vínsala sem er, svo lengi sem vínsalinn eigi heima í útlöndum. „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja og byggist á einhverjum misskilningi um það að ÁTVR sé einhvers konar lýðsheilsuvörn en Íslendingar eiga heimsmet í fjölda áfengisverslana miðað við höfðatölu. Það er engin þjóð sem rekur jafn margar,“ segir Arnar og að hér á landi séu þrettán áfengisverslanir á hverja þúsund íbúa á meðan þær séu þrjár í Svíþjóð.
Áfengi Netverslun með áfengi Tengdar fréttir Vilhjálmur í Smáríkinu ákærður fyrir að selja eina hvítvínsbelju Vilhjálmur Forberg Ólafsson, forsvarsmaður áfengisnetverslunarinnar Smáríkisins, hefur verið ákærður fyrir að hafa selt eina þriggja lítra belju af chardonnay í lok maí í fyrra. 25. ágúst 2025 11:01 Sante fer í hart við Heinemann Sante ehf. sem heldur úti netverslun með áfengi hefur lagt fram lögreglukæru á hendur Heinemann Travel Retail Ice ehf. vegna smásölu félagsins í tollfrjálsri verslun á Keflavíkurflugvelli. 19. ágúst 2025 18:05 Mest lesið Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Viðskipti innlent Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Viðskipti erlent Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Viðskipti erlent Engar hópuppsagnir í apríl Viðskipti innlent Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Viðskipti innlent Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Atvinnulíf Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Fleiri fréttir Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Sjá meira
Vilhjálmur í Smáríkinu ákærður fyrir að selja eina hvítvínsbelju Vilhjálmur Forberg Ólafsson, forsvarsmaður áfengisnetverslunarinnar Smáríkisins, hefur verið ákærður fyrir að hafa selt eina þriggja lítra belju af chardonnay í lok maí í fyrra. 25. ágúst 2025 11:01
Sante fer í hart við Heinemann Sante ehf. sem heldur úti netverslun með áfengi hefur lagt fram lögreglukæru á hendur Heinemann Travel Retail Ice ehf. vegna smásölu félagsins í tollfrjálsri verslun á Keflavíkurflugvelli. 19. ágúst 2025 18:05