„Eitthvað sem gerist í hausnum á mönnum þegar þeir eru að verja titil“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. apríl 2026 12:00 Daníel Hafsteinsson og Oliver Ekroth með Meistarabikarinn. vísir/anton Albert Brynjar Ingason, sérfræðingur Stúkunnar, segir Víkinga líklega til að verða Íslandsmeistarar annað árið í röð. Leikmannahópur liðsins sé sterkur þótt hann sé ekki fullkominn.
Víkingi er spáð 1. sæti Bestu deildar karla í árlegri spá íþróttadeildar Vísis og Sýnar. Víkingur varð Íslandsmeistari í fyrra, í þriðja sinn á fimm árum og í áttunda sinn alls. Albert telur þá vera vel í stakk búna til að verja titilinn. „Heldur betur. Þetta er gríðarlega sterkur hópur sem þeir eru með og við höfum séð það að þeir tóku tvo leiki á sama degi um daginn og unnu þá báða nokkuð þægilega þannig að það er gríðarleg breidd í þessum leikmannahópi og skiljanlega flestir að spá því að þeir verji titilinn í ár,“ sagði Albert er hann var beðinn um að rýna í lið Víkings. Klippa: Besta-spáin 2026 - 1. sæti Albert segir að það gæti reynst snúið fyrir Sölva Geir Ottesen að halda öllum leikmönnum Víkings góðum. „Þeir eru náttúrulega að fara þetta „Champions Path“ þannig að þeir fá alltaf slatta af Evrópuleikjum. Við erum búnir að tala um að þetta sé mikil breidd en það er krefjandi að hafa alla sátta. Það getur orðið erfitt. Þetta eru stórir karakterar og stórir leikmenn sem vilja spila þannig að það mun reyna á Sölva að hafa hópinn góðan. Ef maður horfir á hópinn sjálfan þá hefur Elías [Már Ómarsson] ekki heillað í vetur. Þeir hafa verið að reyna að finna mann í stað Nikolajs [Hansen] en mér skilst að hann sé í toppformi núna þannig að mögulega framherjastaðan,“ sagði Albert. „Svo höfum við séð það að þrátt fyrir að öftustu línu líði betur með Ingvar [Jónsson] í markinu hefur hann aðeins dottið niður og ekki verið að taka jafn stórar vörslur og hann hefur verið að gera árin á undan. Svo er hafsentaparið, sterkasta hafsentapar landsins, Gunnar [Vatnhamar] og [Oliver] Ekroth eru árinu eldri og leikjunum hjá þeim hefur verið að fækka. Þeir misstu af fleiri leikjum í fyrra en árið á undan. Þannig að þetta er aftasta línan og spurning hvort Sölvi hitti á liðið sitt.“ Missir af Matthíasi og Pablo Valur 2018 er síðasta liðið sem varði Íslandsmeistaratitil og það hefur reynst liðum snúið. „Svo er auðvitað ekkert hægt að tala um það sem veikleika en liðum hefur gengið illa að verja titil. Eitthvað sem gerist í hausnum á mönnum þegar þeir eru að verja titil. Andstæðingurinn kemur trylltari gegn þér,“ sagði Albert. „Og þótt þeir hafi ekki verið í stóru hlutverki inni á vellinum í fyrra veit maður það að þeir voru í hlutverki inni í klefanum; það eru stórir karakterar farnir í Pablo [Punyed] og Matthíasi [Vilhjálmssyni]. Þetta er gríðarlega sterkur hópur en það getur líka verið ákveðin kúnst að halda mönnum góðum.“ Víkingur fær Breiðablik í heimsókn í upphafsleik Bestu deildarinnar klukkan 19:15 í kvöld. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Sport Ísland.
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Fótbolti Fleiri fréttir ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Sjá meira