Bauð Pútín að vera „músin“ hans Kjartan Kjartansson skrifar 8. apríl 2026 10:10 „Músin“ Viktor Orbán (t.v.) með „ljóninu“ Vladímír Pútín þegar þeir hittust í Moskvu í fyrra. Orbán bauð Pútín þjónustu sína í símtali í október. Vísir/EPA Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, bauð Vladímír Pútín Rússlandsforseta alla þá aðstoð sem hann gæti veitt honum í haust. Ungverski leiðtoginn, sem hefur komið í veg fyrir lánveitingar ESB til Úkraínu, sagðist geta verið músin sem hjálpaði ljóninu Pútín.
Ummæli lét Orbán falla í símtali við Pútín í október samkvæmt eftirriti ungverska þingsins á því sem Bloomberg-fréttastofan komst yfir. „Vinskapur okkar náði slíkum hæðum í gær að ég get hjálpað á hvaða hátt sem er. Ég er til þjónustu reiðubúinn í hverju því sem ég get hjálpað með,“ sagði Orbán við Pútín. Vítnaði Orbán til dæmisögu Esóps um mús sem kemur ljóni til bjargar eftir að það þyrmir lífi músarinnar. Pútín er sagður hafa hlegið við. Rússneski forsetinn er á móti sagður hafa lofað „sjálfstæði og sveigjanleika“ afstöðu Orbáns gagnvart hernaði hans í Úkraínu. „Það er óskiljanlegt fyrir okkur að svo yfirveguð afstað sem fer milliveginn skuli aðeins uppskera gagnrök,“ sagði Pútín samkvæmt eftirritinu. Hert afstaða í harðri kosningabaráttu heima fyrir Orbán hefur verið helsti bandamaður Pútíns í Evrópu, sérstaklega eftir að allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu hófst í febrúar árið 2022. Ungverski forsætisráðherrann kom nýlega í veg fyrir að Evrópusambandið veitti Úkraínumönnum. Aðrir evrópskir leiðtogar tortryggja fyrir vikið ungverska ráðamenn og hafa takmarkað þær upplýsingar sem þeir deila með þeim um málefni Úkraínu sérstaklega. Utanríkisráðherra Ungverjalands viðurkenndi nýverið að hann færi strax með það sem færi fram á lokuðum leiðtogafundum á vegum Evrópusambandsins beint í rússneskan starfsbróður hans. Afstaða Orbán til Úkraínu hefur aðeins forherst í harðri kosningabaráttu sem hann háir nú heima fyrir. Ungverska stjórnarandstaðan eygir langþráðan sigur á Fidesz-flokki Orbán þó að sitjandi forsætisráðherrann gæti enn snúið taflinu við, ekki síst þar sem hann nýtur góðs af kjördæmaskipan sem hann hannaði sjálfur. Í kosningabaráttunni hefur Orbán meðal annars lýst Úkraínu sem óvinaríki Ungverjalands. Hann lét fyrir páska skrúfa fyrir helstu gasleiðsluna til Úkraínu vegna óánægju sinnar með að rússnesk olíuleiðsla sem liggur í gegnum Úkraínu sem varð fyrir skemmdum í stríðsátökunum hafi ekki verið lagfærð ennþá. Bandaríkjastjórn rær nú að því öllum árum að hjálpa Orbán að ná endurkjöri. Margir bandarískir repúblikanar hafa á undanförnum árum litið til Orbán og valdboðshyggju hans sem pólitískrar fyrirmyndar. Orbán hefur sjálfur lýst eigin stjórnarfari sem „ófrjálslyndu lýðræði“. Orbán hefur beitt sér gegn félagasamtök, helstu fjölmiðlar landsins eru í eigu pólitískra bandamanna og hann hefur grafið undan sjálfstæði dómstóla. Sambærileg þróun hefur átt sér stað í Bandaríkjunum frá því að Donald Trump tók aftur við völdum í byrjun síðasta árs.
Ungverjaland Rússland Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Vladimír Pútín Kosningar í Ungverjalandi Tengdar fréttir Skrúfa fyrir eina helstu leiðina fyrir gas til Úkraínu Ríkisstjórn Viktors Orbán í Ungverjalandi hefur ákveðið að skrúfa fyrir gasleiðslur til Úkraínu til þess að knýja á um að olíuleiðsla frá Rússlandi verði opnuð aftur. Orbán hefur tekið upp enn harðari stefnu gegn Úkraínu en áður í harðri kosningabaráttu sem hann háir heima fyrir. 25. mars 2026 11:44 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Sjá meira
Skrúfa fyrir eina helstu leiðina fyrir gas til Úkraínu Ríkisstjórn Viktors Orbán í Ungverjalandi hefur ákveðið að skrúfa fyrir gasleiðslur til Úkraínu til þess að knýja á um að olíuleiðsla frá Rússlandi verði opnuð aftur. Orbán hefur tekið upp enn harðari stefnu gegn Úkraínu en áður í harðri kosningabaráttu sem hann háir heima fyrir. 25. mars 2026 11:44