„Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir, Sigrún E. Unnsteinsdóttir, Rósa Guðný Arnardóttir, Jökull Sólberg Auðunsson, Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir, Jón Ferdínand Estherarson, Hannes Pétursson, Halldór Ólafsson, Geirdís Hanna Kristjánsdóttir og Birna Gunnlaugsdóttir skrifa 8. apríl 2026 08:02 „Ég ætla ekki að kjósa,“ segja margir. Fólk hefur misst trú á stjórnmálin og það er fullkomlega skiljanlegt. Þegar sama sagan endurtekur sig aftur og aftur, loforð eru svikin og raunverulegar breytingar láta á sér standa, er auðvelt að gefast upp. En það er einmitt það sem við megum ekki gera. Stjórnmálin hafa ekki brugðist vegna þess að fólk kýs. Þau hafa brugðist vegna þess að of margir með völd þjóna öðrum hagsmunum en almennings. Hagsmunatengsl og fjármagn ráða þá för. Þetta er ekki tilviljun, þetta er kerfi nýfrjálshyggjunnar. Á meðan lýðskrum sækir í sig veðrið nú í kosningabaráttunni hrylla aðrir sig yfir innihaldslausum orðum: „Breytingar“, „Samvinna“, „Betri borg“, „Eigum samtal“. Samt kaupa margir fallegt yfirbragð og málgleði. En við þurfum enga frasapólitík. Það þarf aðgerðir. Þá skiptir máli að horfa til þeirra sem þora að gera hlutina öðruvísi. Sósíalistaflokkur Íslands hefur sett fram greinargóða stefnu fyrir Reykjavík og Kópavog. Þar starfar breiður hópur alþýðufólks sem sameinast í baráttunni fyrir réttlátara samfélagi. Starfið byggir á lýðræði, gagnsæi, ábyrgð og ígrundaðri pólitískri umræðu. Reykvíkingar þurfa fyrst og fremst nýja nálgun í húsnæðismálum. Með óhagnaðardrifnu Byggingarfélagi Reykjavíkur getur borgin aukið framboð af hagkvæmu húsnæði og lækkað leigu. Hluti yrði félagslegt húsnæði, annar seldur á kostnaðarverði til fyrstu kaupenda en megnið færi í óhagnaðardrifna útleigu. Með beinni lóðaúthlutun og aðgerðum gegn braski má lækka kostnað og bæta stöðugleika. Aðgerðir gegn tómu húsnæði og okurleigu myndu enn fremur bæta stöðuna og styrkja lífskjör íbúa. Fyrir marga snýst þetta ekki um pólitík, heldur hvort þeir þurfi að flytja burt. Sama á við um samgöngur. Öflugri almenningssamgöngur eru nauðsyn. Lækka þarf fargjöld, auka tíðni og bæta tengingar með það að markmiði að gera Strætó gjaldfrjálsan. Stöðva á einkavæðingu, bæta starfskjör og fjárfesta í mannauði. Styrkja þarf innviði fyrir gangandi og hjólandi. Markmiðið er skilvirkt og réttlátt samgöngukerfi fyrir alla. Í skólakerfinu blasir við vandi sem ekki verður leystur með fallegum orðum. Það er lykilstoð jafnaðar. Auka þarf stuðning innan skóla, fjölga sérfræðingum og stytta biðlista. Bæta þarf starfsaðstæður og kjör starfsfólks, sérlega í leikskólum, og tryggja jöfn tækifæri barna óháð efnahag. Efla þarf íslenskukennslu tvítyngdra barna og snemmtæka íhlutun almennt. Þetta eru meðal áherslna flokksins. Velferðarmál, málefni fólks af erlendum uppruna og útvistun verkefna eru þar einnig lykilatriði. Slík útvistun hefur ítrekað leitt til lakari þjónustu og hærri kostnaðar. Verkefnin eru ekki einföld, en þau eru framkvæmanleg. Við viljum fjármagna velferðina með sanngjörnum hætti. Það þýðir að sækja tekjur þangað sem þær eru og tryggja að greiddur sé sami skattur af fjármagnstekjum og launum. Það er lágmarkskrafa að fjármagnseigendur greiði útsvar til jafns við vinnandi fólk. Það er ekki róttækt, heldur einfaldlega réttlátt. Sveitarstjórnarkosningar snúast ekki um orð, heldur hvað er raunverulega gert. Við viljum sjá breytingar í daglegu lífi fólks, lægri kostnað, betri þjónustu og meira öryggi. Þetta snýst í raun bara um eitt: hvort þú vilt að hlutirnir breytist. Höfundar skipa 10 efstu sætin á framboðslista Sósíalistaflokk Íslands til borgarstjórnarkosninganna 2026. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
„
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar