Sérlausnir á grundvelli 349. greinar Sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins? Spyrjið Möltu Erna Bjarnadóttir skrifar 7. apríl 2026 07:44 Af og til skýtur þeirri hugmynd upp að Ísland geti sóst eftir ýmsum sérlausnum í „framhaldi viðræðna um aðild að Evrópusambandinu“. Þar hefur grein 349. í Sáttmálanum um starfshætti Evrópusambandsins (SSEB) verið nefnd meðal þess sem byggja mætti á. Í 349. grein sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins er kveðið á um sérstakar undanþágur fyrir svokölluð ystu svæði sambandsins, svo sem Kanaríeyjar og Azoreyjar, vegna varanlegra og alvarlegra landfræðilegra og efnahagslegra annmarka. Um er að ræða afmarkaðar heimildir sem taka til tiltekinna svæða sem uppfylla þessi skilyrði, en fela ekki í sér almennt svigrúm fyrir aðildarríki til að semja um sambærilegar sérlausnir. Nú vill svo til að a.m.k. eitt dæmi er til um að umsóknarríki hafi í aðildarviðræðum reynt að beita þessari grein til að ná fram sérmeðhöndlun. Í skýrslu utanríkisráðuneytisins Íslenskur landbúnaður í alþjóðlegu umhverfi frá 2003 er fjallað um beiðni Möltu í aðildarferlinu. Þar segir: „Framkvæmdastjórnin hafnaði einnig beiðni Maltverja um að fá sérmeðhöndlun á sama hátt og sum fjarlæg svæði, t.d. Kanaríeyjar, Azoreyjar o.fl. Tvær ástæður voru aðallega fyrir þessu. Framkvæmdastjórnin vildi ekki útvíkka þessar undanþágur og einnig er Malta ekki fjarlægt svæði.“ Eflaust er hægt að rannsaka þetta tiltekna atriði nánar en það er skýrt að beiðni um sérlausn á þessum grundvelli var lögð fram — og henni var hafnað. Ekki vegna þess að ekki hafi verið reynt að semja. Ekki vegna þess að ekki hafi verið leitað leiða. Heldur vegna þess að 349. grein SSEB átti ekki við. Þegar haldið er fram að „samningaborðið“ skeri úr um hvaða sérlausnir séu mögulegar er horft fram hjá þeirri staðreynd að mörkin liggja í mörgum tilvikum fyrir áður en viðræður hefjast. Jafnvel hefur þegar verið reynt á þau. Mál Möltu er einfalt dæmi um það. Höfundur er hagfræðingur og í stjórn Heimssýnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Erna Bjarnadóttir Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Af og til skýtur þeirri hugmynd upp að Ísland geti sóst eftir ýmsum sérlausnum í „framhaldi viðræðna um aðild að Evrópusambandinu“. Þar hefur grein 349. í Sáttmálanum um starfshætti Evrópusambandsins (SSEB) verið nefnd meðal þess sem byggja mætti á. Í 349. grein sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins er kveðið á um sérstakar undanþágur fyrir svokölluð ystu svæði sambandsins, svo sem Kanaríeyjar og Azoreyjar, vegna varanlegra og alvarlegra landfræðilegra og efnahagslegra annmarka. Um er að ræða afmarkaðar heimildir sem taka til tiltekinna svæða sem uppfylla þessi skilyrði, en fela ekki í sér almennt svigrúm fyrir aðildarríki til að semja um sambærilegar sérlausnir. Nú vill svo til að a.m.k. eitt dæmi er til um að umsóknarríki hafi í aðildarviðræðum reynt að beita þessari grein til að ná fram sérmeðhöndlun. Í skýrslu utanríkisráðuneytisins Íslenskur landbúnaður í alþjóðlegu umhverfi frá 2003 er fjallað um beiðni Möltu í aðildarferlinu. Þar segir: „Framkvæmdastjórnin hafnaði einnig beiðni Maltverja um að fá sérmeðhöndlun á sama hátt og sum fjarlæg svæði, t.d. Kanaríeyjar, Azoreyjar o.fl. Tvær ástæður voru aðallega fyrir þessu. Framkvæmdastjórnin vildi ekki útvíkka þessar undanþágur og einnig er Malta ekki fjarlægt svæði.“ Eflaust er hægt að rannsaka þetta tiltekna atriði nánar en það er skýrt að beiðni um sérlausn á þessum grundvelli var lögð fram — og henni var hafnað. Ekki vegna þess að ekki hafi verið reynt að semja. Ekki vegna þess að ekki hafi verið leitað leiða. Heldur vegna þess að 349. grein SSEB átti ekki við. Þegar haldið er fram að „samningaborðið“ skeri úr um hvaða sérlausnir séu mögulegar er horft fram hjá þeirri staðreynd að mörkin liggja í mörgum tilvikum fyrir áður en viðræður hefjast. Jafnvel hefur þegar verið reynt á þau. Mál Möltu er einfalt dæmi um það. Höfundur er hagfræðingur og í stjórn Heimssýnar.
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar