Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Lovísa Arnardóttir skrifar 4. apríl 2026 16:16 Nýja sánusvæðið er svakalega vinsælt. VA Arkitektar Á föstudaginn langa, í gær, var svo mikið að gera í Vesturbæjarlaug að hleypt var inn í hollum. Vaktstjóri segir gesti mega búast við álíka önnum á morgun, páskadag.
Sérstök opnun er í laugum í Reykjavík um páskana og aðeins opið frá ýmist klukkan 11 eða 13 til 17. Fríða Björk Einarsdóttir, vaktstjóri í Vesturbæjarlaug, segir að frá því að nýjar sánur voru opnaðar í lauginni hafi verið um 40 prósenta aukning í aðsókn. „Það voru engir skápar lausir, engar körfur og þá gátum við ekkert annað gert en að loka,“ segir Fríða Björk um aðstæður í gær. Starfsfólk hafi talið tíu út og þá hleypt tíu inn í hollum. „Það var auðvitað bara opið í fjóra tíma,“ segir Fríða Björk og að eflaust hafi líka haft áhrif að lokað hafi verið í sundlauginni á Seltjarnarnesi. Mikill fjöldi heimsækir laugina daglega og sérstaklega eftir að sánurnar opnuðu í desember. Vísir/Arnar Hún segir alls gestina í gær hafa verið 820. Til samanburðar séu gestir á venjulegum degi, frá 6.30 til klukkan 22, venjulega um 1.500 í lauginni sem dreifist þá á miklu lengri tíma. „Á venjulegum degi eru kannski um þúsund gestir en undanfarið eru þeir búnir að vera 1.500 á hverjum degi, út af fínu sánunum,“ segir Fríða. Gott úrval lauga Í dag, laugardag, er hefðbundin opnun í sundlaugum borgarinnar en á morgun tekur aftur við skert opnun frá 13 til klukkan 17. „En það eru allar laugar opnar og það ætti þannig að vera nóg úrval,“ segir hún um sund á morgun. Fjallað var um nýju sánurnar á Vísi á síðasta ári. Hönnun nýju sánurýmanna var í höndum Hebu Hertervig og Steinunnar Halldórsdóttur hjá VA arkitektum. Sánurnar voru opnaðar í desember í fyrra.
Reykjavík Sundlaugar og baðlón Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Fleiri fréttir Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Sjá meira