Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. apríl 2026 13:43 Mæðgurnar Corinna og Gina Schumacher en til hægri er síðan Michael Schumacher. Getty/Andreas Rentz Gina Schumacher hefur ekki tjáð sig opinberlega síðan faðir hennar lenti í slysi fyrir þrettán árum. Nú rýfur hún þögnina og segir frá því hvernig hestaíþróttin hjálpaði henni. „
Eftir slys pabba helti ég mér út í þetta,“ segir dóttirin samkvæmt þýska blaðinu Bild. Michael Schumacher lenti í hörmulegu skíðaslysi í Ölpunum fyrir þrettán árum. Lítið hefur frést af lífi hans síðan þá og fáir utan fjölskyldunnar vita með vissu hvernig ástand hans er. Dóttirin, Gina Schumacher, hefur verið algjörlega þögul frá slysinu. Nú tjáir hún sig í fyrsta sinn um föður sinn í heimildarmyndinni „Horsepower – The World of Gina Schumacher“. Þar segir hún að hestarnir hafi hjálpað henni að vinna úr ástandi föður síns. „Hestarnir hafa alltaf verið mikilvægir síðan þá hafa þeir sannarlega verið mikilvægir. Ég meina, ég gæti ekki verið án hesta. Þeir hjálpuðu mér í gegnum allt,“ segir hún í myndinni. @sportbladet Gina er meðal þeirra fremstu í heiminum með nokkur heimsmeistaratignargull. Heimildarmyndin fylgir henni og móður hennar, Corinnu, á búgörðum í Sviss og Bandaríkjunum. Corinna Schumacher segir að Michael hafi spáð fyrir um velgengni dóttur sinnar löngu áður en hún sló í gegn. „Michael sagði einu sinni við mig þegar Gina var tíu ára: „Gina verður miklu betri en þú. Vegna þess að hún er eigingjarnari. Ef maður er íþróttamaður verður maður að vera eigingjarn á ákveðinn hátt, og það er frábært. Annars verður maður að engu.“ Í dag finnst mér hann hafa haft svo rétt fyrir sér,“ sagði Corinna Schumacher. Dóttirin þakkar foreldrum sínum fyrir velgengni sína á hestbaki. Móðirin Corinna stundaði einnig hestaíþróttir á yngri árum. Þegar hún reyndi að taka upp áhugamálið aftur gekk það ekki sérstaklega vel. „Hún átti hest áður og þegar við vorum yngri vildi hún byrja aftur en hún vildi öruggan hest. Svo var hún í Dúbaí með pabba og reið arabískum hestum, en pabbi datt af honum,“ segir Gina Schumacher. Michael Schumacher er einn besti Formúlu 1-ökumaður allra tíma. Á ferli sínum vann hann sjö heimsmeistaratitla, sem ásamt Lewis Hamilton er meira en nokkur annar hefur náð.
Mest lesið Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Sterkir íslenskir hlauparar á EM í utanvegahlaupum Sport Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fótbolti Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Fótbolti Fleiri fréttir Liðsstjóri Ferrari á spítala Fleiri lið reyndu að sækja Leclerc Verða fleiri framúrakstrar í Mónakó? Fékk nýjan samning en Ferrari gefur ekki upp árafjöldann Þykja Alpine liðið vera of dýrt Tískuhús blandar sér í Formúlu 1 Gætu þurft að stíga inn í eftir harða baráttu liðsfélaganna Sá fyrsti í sögu Formúlu 1 Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu George Russell og Lando Norris úr leik í Kanada Russell á ráspól í Kanada Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Mercedes ökumennirnir halda áfram að berjast Max Verstappen rétt missti af sigri Nítján ára í hóp með Schumacher og Senna Antonelli hélt uppteknum hætti Formúlunni flýtt vegna storms Antonelli fékk færri tilraunir en tók ráspólinn McLaren með bestu sprettina í Miami Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Leclerc sneggstur á æfingum Verstappen fámáll um framtíð sína Sjá meira