„Skemmir bara fyrir báðum liðum og bara leiðinleg uppákoma“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 1. apríl 2026 21:45 Veigar Páll Alexandersson fyrirliði Njarðvíkinga. Vísir/Anton Njarðvíkingar unnu gríðarlega öflugan tíu stiga sigur 87-97 í fyrsta leik einvígisins gegn Grindavík í 8-liða úrslitum Bónus deild karla í kvöld.Veigar Páll Alexandersson fyrirliði Njarðvíkur ræddi við Sýn eftir leik. „
Við gerum vel í vörn, Rúnar setur upp varnarplan og við framkvæmum það bara þokkalega“ sagði Veigar Páll Alexandersson eftir sigurinn í kvöld. „Við spiluðum betri sóknarleik í seinni hálfleik klárlega og ég held að það hafi bara svolítið skilað þessu“ Njarðvíkingar eltu lengst af í leiknum en náðu að snúa leiknum sér í hag undir lok þriðja leikhluta og voru betri í fjórða leikhluta. „Við hættum aldrei. Við höldum áfram að berjast, við viljum vinna þetta og Rúnar sagði okkur að halda bara áfram og við héldum okkur við leikplanið og þá endar þetta svona“ Atvikið sem verður kannski mest rætt og ritað um í leiknum átti sér stað þegar um tvær mínútur voru eftir af leiknum og allt sauð uppúr þegar Dwayne Lautier-Ogunleye var að bera upp boltann og lenti svo saman við Deandre Kane sem skapaði heldur mikið fjaðrafoki. „Menn eru eitthvað að hrinda hvor öðrum og taka illa í það þegar það er hrint liðsfélögunum og lætur það bitna á liðinu. Menn þurfa bara aðeins að einbeita sér“ „Þetta má ekki gerast og á ekki að gerast. Þetta skemmir bara fyrir báðum liðum og bara leiðinleg uppákoma“ Það voru ekki margir sem gáfu Njarðvíkingum mikinn séns í þessari seríu fyrir fram en þeir eru heldur betur að minna á sig og þessi sigur gefur liðinu helling. „Þetta gefur okkur heilan helling. Við vorum að fagna hérna og ef við vinnum annan leik þá bara fögnum við svona og ef við vinnum næsta þá fögnum við“ Með sigri Njarðvíkur í kvöld eru þeir búnir að „stela“ heimavallaréttinum í bili hið minnsta. „Við ætlum bara að mæta á mánudaginn dýrvitlausir og vernda heimavöllinn, það er bara þannig“ sagði Veigar Páll Alexandersson.
UMF Njarðvík Körfubolti Bónus-deild karla Mest lesið Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Sterkir íslenskir hlauparar á EM í utanvegahlaupum Sport Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fótbolti HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Fótbolti Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Fótbolti Fleiri fréttir Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Liðsstjóri Ferrari á spítala Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Sterkir íslenskir hlauparar á EM í utanvegahlaupum Dagskráin í dag: Tímatökur í Mónakó og æfingalandsleikir Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Markaveisla í Lengjudeildinni Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Þarf að draga sig úr keppni í undanúrslitum Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu „Markmiðinu er náð“ Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Aron Einar heim í Þorpið? Örn tekur við karlaliði Selfoss Náðu miðum á HM án þess að borga fyrir þá Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Lið Íslands gegn Úkraínu: Thelma, Sandra og Emilía fremstar Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Hjóluðu á HM frá Argentínu til Bandaríkjanna Þurfa að borga tvo milljarða til að fá José Mourinho Sjá meira