Lífshlaupið - sterkari og heilbrigðari þjóð Willum Þór Þórsson skrifar 1. apríl 2026 14:00 Íþróttahreyfingin á Íslandi er einstök í alþjóðlegum samanburði. Hún er stærsta fjöldahreyfing landsins og nær til allra aldurshópa þar sem yfir 200 þúsund iðkendur mynda snertifleti við nær öll heimili í landinu. Hún er sameiginlegur vettvangur okkar allra og stendur ekki aðeins fyrir keppni heldur er hún ein af grunnstoðum forvarna, lýðheilsu og heilbrigði þjóðarinnar. Íþróttahreyfingin er byggð upp af starfi sjálfboðaliða, fagfólks og félagslegrar þátttöku. Hún stendur á samfélagslegum grunni sem hefur mótast og þróast með þjóðinni í meira en öld. Heilsu- og hvatningarverkefnið Lífshlaupið markar enn eitt árið öfluga þátttöku landsmanna í heilsueflingu. Það hefur fest sig í sessi sem einn af lykilþáttum í árlegu lýðheilsustarfi Íslendinga og voru þátttakendur í ár yfir 21 þúsund manns sem er 14% aukning milli ára. Að hlaupa saman fyrir lífið hvetur til fjölbreyttrar daglegrar hreyfingar og skapar jákvætt hvatakerfi sem styrkir bæði lýðheilsu og forvarnir í samfélaginu. Verkefnið sameinar samfélög, sveitarfélög, skóla, fyrirtæki, stofnanir og íþróttafélög og skilaboðin eru einföld: „Hreyfum okkur meira og hreyfum okkur saman.“ Þessi hvatning hefur breiðst út og skapað raunverulegar og mælanlegar breytingar til heilla fyrir heilsu þjóðarinnar. Fjárfesting í forvörnum sem margborgar sig Rannsóknir sýna að hver hreyfimínúta bætir heilsu og styrkir lífsgæði. Með þessu öfluga forvarnarverkefni tekst að virkja fjölbreyttan hóp fólks til hreyfingar í daglegu lífi í krafti góðrar samvinnu. Þátttakan nær til allra aldurshópa og í ár jókst hún sérstaklega meðal grunnskólanna og hreystihópanna 60+. Tengslin við vinnustaði og stofnanir aukast ár frá ári og styrkja verulega reglubundna hreyfingu og heilsueflingu á þessum vettvangi. Með því að „hlaupa saman fyrir lífið“ sköpum við samfélag þar sem reglubundin hreyfing verður hluti af daglegu lífi fólks á öllum aldri á fjölbreyttan, skemmtilegan og gleðilegan hátt. Allir taka þátt á sínum forsendum og engir múrar eru milli aldurshópa, starfa, verkefna eða stöðu. Áherslan er á fjölbreytta hreyfingu þar sem hver og einn finnur leiðir sem henta. Þar má nefna göngu, sund, jóga og aðra hreyfingu í félagi við aðra með áherslu á aukna samveru sem styrkir bæði líkamlega, félagslega og andlega heilsu. Lífshlaupið sameinar gildi íþróttahreyfingarinnar um aðgengi þar sem allir geta tekið þátt. Það eflir félagsleg tengsl sem styrkja samfélagið í heild, stuðla að betri lýðheilsu og byggja upp samfélagslega seiglu. Lífshlaupið er samfélagslegur viðburður sem undirstrikar hvatningu og samstöðu um mikilvægi hreyfingar, forvarna og lýðheilsu. Íþróttahreyfingin er öflugasti vettvangurinn til að takast á við lýðheilsutengdar áskoranir og sameinar þjóðina í að byggja upp heilbrigðara samfélag. Þjóð sem hreyfir sig saman er sterkari og heilbrigðari þjóð og íþróttahreyfingin er hjartað í þeirri framtíð. Höfundur er forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Íþróttir barna Heilsa ÍSÍ Willum Þór Þórsson Mest lesið Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Er bara best að þegja? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason Skoðun Reykjavík er höfuðborg, ekki fjölmenningarborg Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir Skoðun 1. maí: Sóknarfæri í jafnrétti eða skref aftur á bak? Kolbrún Halldórsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu skrifar Skoðun Borgin sem hætti að hlusta skrifar Skoðun Virðing, virkni og góð lífsgæði alla ævi Ellý Tómasdóttir,Ólafía Ingólfsdóttir skrifar Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir skrifar Skoðun Barátta sem skiptir sköpum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason skrifar Skoðun 1. maí: Sóknarfæri í jafnrétti eða skref aftur á bak? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Styrkur okkar er velferð allra Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjörður fyrir fólk Árni Stefán Guðjónson skrifar Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri á vinnumarkaði Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson skrifar Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Ásthildur Sturludóttir skrifar Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bestum borgina fyrir skynsegið fólk! Olga Margrét Cilia skrifar Skoðun Pólland að verða efnahagsveldi - kallar eftir fleira fólki Jónas Guðmundsson skrifar Skoðun Lægri skattar eru réttlætismál fyrir ungt fólk Arnar Elvarsson skrifar Skoðun Ég lifi í draumi! Ingvar Örn Ákason skrifar Skoðun Neyðarkall úr Eyjum Hallgrímur Steinsson skrifar Skoðun Hvað er svona gott við að búa í Kópavogi? Sveinn Gíslason skrifar Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald skrifar Skoðun Viltu græða sólarhring í hverjum mánuði? Hjördís Lára Hlíðberg skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Hafnarfirði Örn Geirsson skrifar Skoðun „Hvaða plön ertu með í sumar?“ Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar
Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar