Hæðarhryggur yfir landinu í dag og stormur í nótt Lovísa Arnardóttir skrifar 1. apríl 2026 07:19 Það gengur hæðarhryggur yfir í dag og fer svo að snjóa og rigna í nótt. Vísir/Vilhelm Hæðarhryggur fer yfir landið í dag. Þá lægir fyrir hádegi á vestanverðu landinu og dregur smám saman úr éljum, en áfram vestan tíu til 15 metrar á sekúndu austanlands fram eftir degi. Hiti verður á bilinu eitt til sex stig, en nálægt frostmarki austanlands.
Samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings verður hæðarhryggurinn kominn yfir austanvert landið seint í dag og þar verður þá breytileg átt, þrír til átta metrar á sekúndu, en snýst í vaxandi suðaustanátt með dálítilli vætu vestanlands. Svo gengur í suðaustan hvassviðri eða storm í nótt með rigningu eða snjókomu, en þurrt að mestu norðanlands. Ekki hefur verið gefin út viðvörun vegna þess en á vef Veðurstofu segir að búast megi við erfiðum aksturskilyrðum víða um land, einkum á fjallvegum. Á morgun á svo að lægja og kólna, fyrst suðvestantil. Snjókoma eða slydda víða um land, en dregur smám saman úr ofankomu síðdegis, eins og áður, fyrst suðvestantil. Suðvestan 8-13 og él undir kvöld, en suðaustan 15-23 með snjókomu eða slyddu á norðaustanverðu landinu fram að miðnætti. Hiti um eða rétt yfir frostmarki. Á vef Vegagerðar kemur fram að vegur um Súgandafjörð sé ófær vegna fastra bíla og að þungfært sé á Kjósarskarði og vegur um Fjarðarheiði er lokaður. Nánar um veður á vef Veðurstofu og færð vega á vef Vegagerðar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag (skírdagur): Suðaustan 13-20 m/s og rigning, slydda eða snjókoma, en úrkomulítið á Norðurlandi. Lægir með éljum, fyrst suðvestantil. Suðvestan 5-13 og él um kvöldið, en suðaustan hvassviðri með rigningu eða snjókomu norðaustanlands fram að miðnætti. Hiti 1 til 7 stig, en fer kólnandi. Á föstudag (föstudagurinn langi): Suðlæg eða breytileg átt 3-10. Él sunnan- og vestantil, en annars bjart með köflum. Vaxandi norðvestanátt og fer að snjóa norðaustanlands seint um kvöldið. Frost 0 til 7 stig, kaldast í innsveitum. Á laugardag: Suðvestlæg eða breytileg átt 3-10 og yfirleitt léttskýjað, en dálítil él suðvestantil og snjókoma öðru hverju á norðanverðu landinu. Áfram kalt í veðri. Á sunnudag (páskadagur): Suðlæg átt og víða bjart veður, en dálítil él sunnan- og vestanlands og snjókoma með köflum á Vestfjörðum framan af degi. Frost 1 til 7 stig. Á mánudag (annar í páskum): Vaxandi austanátt og dálítil él á víð og dreif framan af degi, en víða snjókoma eða slydda seint um daginn, einkum suðaustantil. Lengst af þurrt norðvestanlands. Hiti nálægt frostmarki. Á þriðjudag: Útlit fyrir breytilega átt og víða rigningu eða snjókomu. Snýst í norðlæga átt og kólnar um kvöldið.
Veður Færð á vegum Mest lesið Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Erlent Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Innlent Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Innlent Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Innlent Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum Innlent Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Erlent Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Innlent „Skólinn okkar er alltof lítill“ Innlent Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Innlent Fleiri fréttir Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Gætu orðið hressilegar dembur inn til landsins Skýjað að mestu og hæg norðlæg eða breytileg átt Rigning og skúrir víða um land Bætir í úrkomu eftir hádegi Spáð hlýju veðri norðaustantil Víða skúrir en allt að tuttugu stigum austanlands Sjá meira