„Finnst Valur ekki vera þannig klúbbur“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. apríl 2026 11:01 Valur endaði í 2. sæti Bestu deildar karla í fyrra en var tólf stigum á eftir Íslandsmeisturum Víkings. vísir/diego Baldur Sigurðsson, sérfræðingur Stúkunnar, er spenntur að sjá hvaða áhrif breytingar hjá Val hafa á liðið. Honum finnst Valsmenn þó ekki jafn stórhuga og áður og segir það miður.
Val er spáð 6. sæti Bestu deildar karla í árlegri spá íþróttadeildar Vísis og Sýnar. Valsmenn enduðu í 2. sæti í deild og bikar á síðasta tímabili. Að því loknu skiptu þeir um þjálfara, létu Srdjan Tufegdzic fara og réðu Hermann Hreiðarsson í hans stað. Um leið tilkynntu Valsarar um stefnubreytingu í leikmannamálum og framtíðarsýn félagsins. „Ef þú spyrð mig persónulega með Val sýnist mér þeir ekkert vera að stefna á neinn titil. Fyrir mig sem aðdáanda knattspyrnu vil ég bara sjá sem flest lið stefna á titilinn og fá spennu og baráttu þar. Eins og staðan er núna sé ég þá ekki á neinn hátt berjast um einhvern titil,“ sagði Baldur er hann var beðinn um að rýna í lið Vals. Klippa: Besta-spáin 2026 - 6. sæti „Verkefnið sem slíkt, ef það gengur upp hjá þeim, mun væntanlega taka einhver ár ef þeir ætla að fara í einhverja enduruppbyggingu og koma með fleiri yngri leikmönnum inn og þannig. Það er ekkert út á það að setja. Mér finnst bara Valur ekki vera þannig klúbbur. En ef það gengur upp skal ég svo sem éta sokkinn minn og viðurkenna það eftir kannski 2-3 ár. En fyrir þetta tímabil hef ég áhyggjur af þeim og ég held að það sé eðlilegt af því við höfum ekkert séð almennilega í vetur hvar þeir eru að fara að bjóða okkur upp á.“ Hvað erum við að fara að sjá frá þeim? Baldur segir að sterkasta byrjunarlið Vals innihaldi þekktar stærðir og það sé sterkt. „Mig grunar nú samt að þegar við sjáum þá í fyrsta leik að þá munum við sjá kunnugleg nöfn. Þeir eru með sterkt byrjunarlið og öfluga leikmenn með reynslu. Þetta er alveg topp sex byrjunarlið. Þegar meiðslin fara að koma og álagið kemur inn verður gríðarlega fróðlegt og gríðarlega áhugavert að sjá hvað hérna Valur er að fara að bjóða okkur upp á í sumar,“ sagði Baldur. „Hvernig blandan verður, hvernig leikstíllinn þeir eru að fara að spila og allt þetta. Hvað erum við að fara að sjá frá þeim? En ég er svekktur að þeir ætli ekki að fara inn í þetta hugarfar og hafa ekki verið að gefa það út að þeir ætli sér að berjast um einhvern titil.“ Valur fær Þór í heimsókn í 1. umferð Bestu deildarinnar klukkan 17:00 sunnudaginn 12. apríl.
Besta deild karla Valur Mest lesið Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum Körfubolti Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Enski boltinn „Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri“ Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Skoruðu fimm í Breiðholtinu og fóru upp í annað sætið Kaupa Conteh frá Stjörnunni „Ótrúlega spennandi sóknarmaður“ Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sjáðu draumainnkomu Söntu í íslenska boltann „Þetta lítur bara illa út“ Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Sjáðu langskotaveislu Keflvíkinga í stórsigri á Skagamönnum Uppgjörið: FH – Breiðablik 0-0 | Markalaust þrátt fyrir fjölda færa og umdeilanleg atvik Uppgjör: Keflavík – ÍA | Slátrun á Suðurnesjunum Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þróttur 4-2 | Ótrúleg endurkoma og nýliðaþrenna Sjáðu Fram og Þór/KA hrista vel upp í fallbaráttunni í Bestu kvenna Beið spenntur eftir því að Amin færi út Sjáðu Stjörnusnakksmáltíð KR-inga og markajafntefli í Eyjum „Vorum bara litlar í okkur og vorum bara hérna að grenja“ „Frábært að vera komnar á sigurbraut aftur“ Sjá meira